fbpx
  • Aerial Silks – Intermediate 4 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    19. október - 11. nóvember 2026 Mánudagar kl. 18:00 - 19:30 Miðvikudagar kl. 18:30 - 19:30

    Intermediate námskeiðið er fyrir nemendur sem hafa einhverja grunnreynslu í silki. Mælt er með að koma á kynningarnámskeið (Intro to Silks) og nokkur byrjendatíma áður en komið er á þetta námskeið. Á þessu námskeiði munum við taka silki trikkin upp á næsta stig. Hér munum við læra erfiðari trikk og æfa okkur í að gera samsetningar af trikkum! Við munum skoða mismunandi gerðir af hreyfingum og auka líkamsmeðvitundina í silkinu. Til þess að fara í Aerial silks - Intermediate er mælt með að hafa lokið að minnsta kosti einu Beginner Silki námskeiði og/eða að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til ræða það við sinn þjálfara.
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun og Conditioning fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða special klippikort til að mæta í þessa tíma
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.

  • Intro to Lyra (Level 1) | hefst 5. janúar!

    Price range: 26.900 kr. through 48.900 kr.

    Intro to Lyra - Byrjendanámskeið 8 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    05. janúar - 25. febrúar 2027 Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17:20 - 18:20 Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma! Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Þetta er alhliða intro- og byrjenda námskeið sem mun undirbúa þig fyrir Mixed Level tímann okkar. Þú getur borgað fyrir helming námskeiðsins núna og hinn helminginn næsta mánuði, eða borgað fyrir allt námskeiðið núna til að fá afslátt! Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!

Go to Top