fbpx

Loftfimleikar hjá Eríal Pole

Langar þig að byrja að  æfa loftfimleika en hefur enga fyrri reynslu?
Eríal Pole er pole og loftfimleika stúdíó í hjarta Reykjavíkur. Við höfum verið starfandi síðan 2012 og sérhæfum okkur í pole fitness, pole dans, og Silki (aerial silks). Einnig erum við með Flex liðleikaþjálfun.  Takmörkuð pláss eru á öllum okkar námskeiðum og eru því hóparnir litlir. Við leggjum áherslu á líkamsvirðingu og hvetjandi andrúmsloft. Það skiptir okkur máli að þú náir markmiðunum þínum!

Engin þyngdartakmörk eru á námskeiðunum okkar. Silkin halda vel yfir tonni. Lestu betur um fatnað í tímunum og aðrar upplýsingar í námskeiðislýsingunni hér að neðan.

  • Intro to Aerial Silks - Byrjendanámskeið 3 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    10. - 26. febrúar | þriðjudagar og fimmtudagar kl. 19:30 - 20:30

    Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunn í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í þessu námskeiði því við byggjum það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!
  • Intro to Lyra - Byrjendanámskeið 3 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    16. febrúar - 04. mars | mánudagar kl 18.35 - 19.35  og miðvikudagar kl. 17:20 - 18:20

    Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma! Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!
  • Áskrift hjá Eríal Pole

    Price range: 12.900 kr. through 44.900 kr.

    ÁSKRIFT

    1x í viku / 5x á mánuði - 12.900 kr á mánuði 2x í viku / 9x á mánuði - 19.800 kr á mánuði 3x í viku / 14x á mánuði - 29.900 kr á mánuði  Ótakmarkaðir tímar - 44.900 kr á mánuði Lyklaaðgangur: Bættu lyklaaðgangi við áskriftina þína fyrir 6.000kr á mánuði. Lágmark 6 mánaða binditími.

    ATH: Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega til að tryggja að þetta sé rétti kosturinn fyrir þig.

    NOTE: Please read the terms and conditions carefully to ensure this is the right option for you.

    Lágmarksbinditími er 6 mánuðir. Uppsagnarfrestur eru þrír mánuðir.

    Minimum commitment period is 6 months. Cancellation notice period is 3 months.

    Áskriftargjöld eru greidd fyrirfram. Nemendur greiða fyrstu greiðslu hér en framtíðargreiðslur koma til greiðslu í heimabanka 1. dag hvers mánaðar fyrir komandi mánuð. Eindagi reikninga verður 5. dag hvers mánaðar. Með því að staðfesta og greiða þessa áskrift samþykkir þú skilmála Eríal Pole sem eru hér að neðan.

    Við viljum biðja nemendur um að skrifa í athugasemd kennitölu og aðrar hagnýtar upplýsingar.

    Please write your kennitala and anything else we should know in the comments.

Go to Top