• Conditioning - styrktaræfingar 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    21. maí - 28. júní 2024 Þriðjudagar kl. 12:00 - 13:00 Föstudagar kl. 15:00 - 16:00

    Conditioning styrktarþjálfun er fullkomin viðbót við þjálfun samhliða öðrum íþróttum og þá sérstaklega í pole og loftfimleikum. Aukinn styrkur gerir allt svo miklu auðveldara! Conditioning er ekki bara fyrir þá sem þegar eru sterkir því allir geta orðið sterkari. Lögð er áhersla á styrktaræfingar fyrir kvið og efri líkama ásamt æfingum fyrir allan líkamann. Smelltu hér ef þú vilt æfa tvisvar í viku! Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu. 
  • Conditioning - styrktaræfingar 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    • 21. maí - 25. júní 2024 Þriðjudagar kl. 12:00-13:00

    • 24. maí - 28. júní 2024 Föstudagar kl. 15:00-16:00

    Conditioning styrktarþjálfun er fullkomin viðbót við þjálfun samhliða öðrum íþróttum og þá sérstaklega í pole og loftfimleikum. Aukinn styrkur gerir allt svo miklu auðveldara! Conditioning er ekki bara fyrir þá sem þegar eru sterkir því allir geta bætt styrk sinn. Lögð er áhersla á styrktaræfingar fyrir kvið og efri líkama ásamt æfingum fyrir allan líkamann. Smelltu hér ef þú vilt æfa einu sinni í viku! Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða öllu leyti!  
  • Aerial Hoop - Byrjendanámskeið 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    26. maí - 30. júní 2024 Sunnudagar kl. 14:55-15:55

    Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma! Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!
  • Pole Dance - Miðstig 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    23. maí - 27. júní 2024 Fimmtudagar kl. 20:30-21:30

    Þetta námskeið er fyrir þau sem eru búin með námskeið í Pole Dance 101. Í Pole Dance Miðstig ráða háir hælar, bodywaves og hársveiflur ríkjum og kenndar eru dansrútínur og kynþokkafullt flæði á súlunni og gólfinu. Pole Dance Miðstig er fyrir alla sem vilja fullkomna danshreyfingarnar á súlunni og gólfinu og þróa áfram sinn eigin dansstíl. Ávinningur þess að stunda pole dance er meira sjálfstraust, sterkari líkami og meiri liðleiki. Skráðu þig í dag til að tryggja þér pláss á námskeiðinu!  
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
     
  • Aerial Hoop - Mixed (miðstig – framhald) 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    26. maí - 30. júní 2024 Sunnudagar kl. 16:00-17:00

    Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í hringnum er hægt að gera alls konar fallega snúninga, stöður og samsetningar. Við erum bara með einn hóp í Aerial Hoop eins og er. Sá hópur með blönduðu getustigi, en flestir í hópnum eru á mið/framhaldsstigi. Á þessu námskeiði munum við taka lyru trikkin upp á næsta stig. Hér munum við læra erfiðari trikk og æfa okkur í að gera samsetningar af trikkum! Við munum skoða mismunandi gerðir af hreyfingum og auka líkamsmeðvitundina í hringnum. Til þess að fara í aerial hoop - mixed er mikilvægt að hafa náð tökum á grunninum í aerial hoop og hafa góðan styrk. Athugið að á þessu námskeiði getur komið til þess að nemendur þurfi að deila lyru með öðrum nemendum.  
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið.
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
       
  • Ert þú að fara að gæsa/ steggja í haust? Hóptímar í Eríal Pole eru frábær skemmtun! Við tökum vel á móti gæsahópum, steggjahópum, vinahópum og vinnuhópum! Allir tímarnir eru ætlaðir fyrir byrjendur og geta því allir verið með! Við höfum margra ára reynslu á því að taka hópa svo við lofum ykkur góðri skemmtun, sjóðheitum myndum og fullt af hlátri! Pole hópskemmtun tilvalið fyrir Gæsa og Steggja hópa. Lærðu fyrstu stöðurnar og snúningana í súludansi! Tíminn er skemmtileg blanda af Pole Fitness og Pole Dance, þar sem þið munið læra sjóðheit danspor og flotta snúninga í kringum súluna! Svo bjóðum við gæsinni/steggnum að vera með smá sýningu fyrir hópinn sem er skemmtilegt að taka upp (jafnvel sýna í brúðkaupinu!). Svo í lok tímans eru teknar hópmyndir sem er alltaf mjög vinsælt! Silki hópskemmtun tilvalið fyrir Gæsa og Steggja hópa. Lærðu fyrstu skrefin og pósurnar í silkinu! Tilvalið fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt! Í silkinu munum við gera læra að klifra upp silkið og gera fallegar og seiðandi pósur í loftinu og jafnframt fara á hvolf! Svo bjóðum við gæsinni/steggnum að vera með smá sýningu fyrir hópinn sem er skemmtilegt að taka upp (jafnvel sýna í brúðkaupinu!). Í lok tímans eru teknar hópmyndir sem er alltaf mjög vinsælt! Sendu okkur fyrirspurn núna á erial@erial.is eða hafðu samband með því að setja í körfuna og fylla út upplýsingarnar (ath engin greiðsla á sér stað). Við svörum þér við fyrsta tækifæri og hlökkum mjög til að heyra í þér! Verið velkomin í nýja stúdíóið okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Rvk!
  • flex

    Flex - liðleiki og styrkur 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    • 20. maí - 1. júlí 2024 Mánudagar kl. 20:30 - 21:30 Lokað 17. júní vegna þjóðhátíðardagsins. Síðasti tími námskeiðsins er mánudaginn 1. júlí.

    • 24. maí - 28. júní 2024 Föstudagar kl. 17:30 - 18:30

    Flex liðleikaþjálfun er hin fullkomna viðbót til að æfa samhliða öðrum íþróttum og sérstaklega í súlu og loftfimleikum. Aukin hreyfigeta gerir allt svo mikið auðveldara! Flex er ekki bara fyrir þau sem eru þegar liðug því það geta allir bætt liðleikann sinn. Lögð er áhersla á aktívar styrktar og liðleikaæfingar. Smelltu hér ef þú vilt æfa tvisvar í viku! Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu!
  • Aerial Silks - Byrjendanámskeið 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    24. maí - 28. júní 2024 Föstudagar kl. 17:30 - 18:30

    Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunnæfingar í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í level 1 því við vinnum að því að byggja það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið.
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
  • Pole Fitness – Level 4 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    20. maí - 1. júlí 2024 Mánudagar og miðvikudagar kl. 19:25 - 20:25

    Lokað 17. júní vegna þjóðhátíðardagsins. Síðasti tími námskeiðsins er mánudaginn 1. júlí. Athugið að á þessu námskeiði getur komið til þess að nemendur þurfi að deila súlu með öðrum nemendum. Þetta er framhalds námskeið í Pole fitness þar sem unnið er að því að bæta styrk, æfa snúninga og gera skemmtileg trikk á hvolfi. Í level 4 eru m.a kennt jade, alegra og shouldermount. Til þess að fara í level 4 er nauðsynlegt að hafa lokið level 3 og að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til að tala við sinn þjálfara til þess að fá mat.
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið.
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
     
  • Pole Fitness – Level 2 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    21. maí - 27. júní 2024 Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 18:20-19:20

    Þetta námskeið er fyrir þau sem eru búin með námskeið í Pole Fitness Level 1. Á þessu námskeiði höldum við áfram að æfa trikk úr level 1, æfum við okkur í að klifra, byggjum upp styrk og prófum að fara á hvolf í fyrsta sinn. Athugið að á þessu námskeiði getur komið til þess að nemendur þurfi að deila súlu með öðrum nemendum. Til þess að fara í level 2 er nauðsynlegt að hafa lokið level 1 og að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til að tala við sinn þjálfara til þess að fá mat.
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið.
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
     
  • Aerial Silks – Framhald 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    21. maí - 27. júní 2024 Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17:10-18:10

    Á þessu námskeiði munum við taka silki trikkin upp á næsta stig. Hér munum við læra erfiðari trikk og æfa okkur í að gera samsetningar af trikkum! Við munum skoða mismunandi gerðir af hreyfingum og auka líkamsmeðvitundina í silkinu. Til þess að fara í Aerial silks – Framhald er nauðsynlegt að hafa lokið að minnsta kosti einu Miðstigsnámskeiði og að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til að tala við sinn þjálfara til þess að fá mat.
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið.
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
  • eríal silki

    Aerial Silks – Miðstig 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    21. maí - 27. júní 2024 Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17:10-18:10

    Á þessu námskeiði munum við taka silki trikkin upp á næsta stig. Hér munum við læra erfiðari trikk og æfa okkur í að gera samsetningar af trikkum! Við munum skoða mismunandi gerðir af hreyfingum og auka líkamsmeðvitundina í silkinu. Til þess að fara í Aerial silks - Miðstig er nauðsynlegt að hafa lokið að minnsta kosti einu byrjendanámskeiði og að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til að tala við sinn þjálfara til þess að fá mat.

Go to Top