Langar þig að æfa pole eða loftfimleika en hefur enga fyrri reynslu? Eftirfarandi námskeið eru fyrir byrjendur!

Eríal Pole er pole og loftfimleika stúdíó í hjarta Reykjavíkur. Við höfum verið starfandi síðan 2012 og sérhæfum okkur í pole fitness, pole dans, loftfimleikum eins og Lýru(aerial hoop) og Silki(aerial silks). Einnig erum við með Flex liðleikaþjálfun sem við mælum klárlega með fyrir alla, því aukin hreyfigeta gerir allar æfingar skemmtilegri! Við leggjum áherslu á líkamsvirðingu og hvetjandi andrúmsloft.
Hér er listi af öllum byrjenda námskeiðunum okkar. Skoðaðu hér neðar á síðunni hvað er í boði hverju sinni.

💪 Pole Fitness Level 1: Vinsælasta námskeiðið okkar! Áhersla á að byggja upp styrk, æfa snúninga, stöður og trikk á súlunni (enginn dans).

🔥Pole dance 101: Kynþokkafullt flæði. Hér lærir þú dansrútínu við seiðandi tónlist, bæði á súlunni og á gólfinu (floorwork). 

🎪Aerial Silks loftfimleikar: Lærðu fallegar stöður í silkislæðunum. Skemmtileg leið til að byggja upp styrk í handleggjunum, öxlunum og kviðnum!

Flex liðleikaþjálfun: Hér er farið í styrktar- og teygjuæfingar fyrir splitt, spígat, bak- og axlarliðleika. Þetta námskeið er fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna, það geta allir fundið æfingar við sitt hæfi!

  • Tilboð!

    Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið með því að setja það í körfu og ganga frá pöntuninni. Ath engin greiðsla á sér stað.

    Við höfum samband um leið og við opnum fyrir skráningu!

    Aerial Silks - Byrjendanámskeið 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku.

    Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunnæfingar í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í level 1 því við vinnum að því að byggja það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi! Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
  • flex

    Flex - liðleiki og styrkur 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    3. júlí - 9. ágúst 2023 *Mánudagar kl 20:35- 21:35

    *Síðasti tíminn verður haldinn 9. ágúst þar sem 7. ágúst er frídagur Flex liðleikaþjálfun er hin fullkomna viðbót til að æfa samhliða öðrum íþróttum og sérstaklega í súlu og loftfimleikum. Aukin hreyfigeta gerir allt svo mikið auðveldara! Flex er ekki bara fyrir þau sem eru þegar liðug því það geta allir bætt liðleikann sinn. Lögð er áhersla á aktívar styrktar og liðleikaæfingar. Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu! *Þetta námskeið mun fara fram í nýja stúdíóinu okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Reykjavík  
  • Pole Fitness – Level 1 6 vikna byrjendanámskeið, kennt 1x í viku

    • 29. júní - 3. ágúst 2023 Fimmtudagar kl. 19:25 - 20:25

    • 4. júlí - 8. ágúst 2023 Þriðjudagar kl. 19:25 - 20:25

      Þetta er námskeið fyrir byrjendur í pole fitness. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunnæfingar í polefitness, snúninga og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í level 1 því við vinnum að því að byggja það upp í tímunum. Ávinningur þess að stunda pole fitness er meira sjálfstraust, betri heilsa, sterkari líkami, innri vellíðan og aukin félagstengsl! Komdu og lærðu fyrsta snúninginn þinn hjá okkur! *Þetta námskeið mun fara fram í nýja stúdíóinu okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Reykjavík Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu. Veldu tímasetningu hér:
  • Pole Dance 101 - Námskeið fyrir byrjendur 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    29. júní - 3. ágúst 2023 Fimmtudagar kl. 20:30-21:30

    Í Pole Dance 101 ráða háir hælar, bodywaves og hársveiflur ríkjum og kenndar eru dansrútínur og kynþokkafullt flæði á súlunni og gólfinu. Á þessu námskeiði lærir þú súludans og floorwork alveg frá grunni og þarf enga reynslu til að vera með! Ávinningur þess að stunda pole dance er meira sjálfstraust, betri heilsa, sterkari líkami, innri vellíðan og aukin félagstengsl! Komdu og lærðu fyrsta snúninginn þinn hjá okkur! Við mælum klárlega með þessum tímum fyrir alla sem elska að dansa! Skráðu þig í dag til að tryggja þér pláss á námskeiðinu! *Þetta námskeið mun fara fram í nýja stúdíóinu okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Reykjavík

Go to Top