Fyrirspurn: Hóptímar – Gæsun – Steggjun – Hópskemmtun – Vinahópar – Hópefli

kr.

Ert þú að fara að gæsa/ steggja í haust? Hóptímar í Eríal Pole eru frábær skemmtun!

Við tökum vel á móti gæsahópum, steggjahópum, vinahópum og vinnuhópum! Allir tímarnir eru ætlaðir fyrir byrjendur og geta því allir verið með! Við höfum margra ára reynslu á því að taka hópa svo við lofum ykkur góðri skemmtun, sjóðheitum myndum og fullt af hlátri!

Pole hópskemmtun tilvalið fyrir Gæsa og Steggja hópa.

Lærðu fyrstu stöðurnar og snúningana í súludansi! Tíminn er skemmtileg blanda af Pole Fitness og Pole Dance, þar sem þið munið læra sjóðheit danspor og flotta snúninga í kringum súluna! Svo bjóðum við gæsinni/steggnum að vera með smá sýningu fyrir hópinn sem er skemmtilegt að taka upp (jafnvel sýna í brúðkaupinu!). Svo í lok tímans eru teknar hópmyndir sem er alltaf mjög vinsælt!

Silki hópskemmtun tilvalið fyrir Gæsa og Steggja hópa.

Lærðu fyrstu skrefin og pósurnar í silkinu! Tilvalið fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt! Í silkinu munum við gera læra að klifra upp silkið og gera fallegar og seiðandi pósur í loftinu og jafnframt fara á hvolf! Svo bjóðum við gæsinni/steggnum að vera með smá sýningu fyrir hópinn sem er skemmtilegt að taka upp (jafnvel sýna í brúðkaupinu!). Í lok tímans eru teknar hópmyndir sem er alltaf mjög vinsælt!

Sendu okkur fyrirspurn núna á erial@erial.is eða hafðu samband með því að setja í körfuna og fylla út upplýsingarnar (ath engin greiðsla á sér stað). Við svörum þér við fyrsta tækifæri og hlökkum mjög til að heyra í þér!

Verið velkomin í nýja stúdíóið okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Rvk!

Description

Komdu með hópinn til okkar í Gæsun, Steggjun eða Hópefli!

 

Aðrar mikilvægar upplýsingar:

  • Hver tími er 50 mín.
  • Ekki er leyfilegt að vera með hringi eða aðra málmskartgripi í tímunum því þeir geta skemmt áhöldin og valdið meiðslum.
  • Tími telst ekki bókaður fyrr en 10.000kr staðfestingagjald hefur verið greitt. (Staðfestingagjald er hluti af heildarverði tímans og er óendurkræft.)
  • Að gefnu tilefni viljum við benda á að ölvun er með öllu óheimil, og óviðeigandi hegðun getur orðið til brottvísunar einstaklinga eða hópsins í heild.
  • Verð fyrir stærð hóps er óháð þátttöku. Greitt er fyrir alla sem mæta hvort sem þeir eru áhorfendur eða þátttakendur.
  • Við mælum með því að koma með íþrótta fatnað eða fatnaði sem þægilegt er að hreyfa sig í.
  • Það fer eftir fjölda í hópnum en í svona hópatímum deilir fólk áháldi (Súlu/Silki/Lýru) og gerir það tímana skemmtilegri og hristir saman hópinn.
  • Hópastærðir: Við getum tekið á móti ca 20 í Pole tíma og ca 12-14 í Silki/Lýru
  • Það er borgað fyrir alla sem koma inn. Tímarnir eru þannig uppsettir að allir geta tekið þátt og haft gaman óháð getu. Vinsamlegast látið vita ef einhver í hópnum getur ekki tekið þátt.

Go to Top