Conditioning - styrktaræfingar 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku

21. maí - 28. júní 2024 Þriðjudagar kl. 12:00 - 13:00 Föstudagar kl. 15:00 - 16:00

Conditioning styrktarþjálfun er fullkomin viðbót við þjálfun samhliða öðrum íþróttum og þá sérstaklega í pole og loftfimleikum. Aukinn styrkur gerir allt svo miklu auðveldara! Conditioning er ekki bara fyrir þá sem þegar eru sterkir því allir geta orðið sterkari. Lögð er áhersla á styrktaræfingar fyrir kvið og efri líkama ásamt æfingum fyrir allan líkamann. Smelltu hér ef þú vilt æfa tvisvar í viku! Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.