fbpx

pole fitness byrjendurPole fitness og Pole Dance námskeið fyrir byrjendur

Við bjóðum upp á þrjú mismunandi námskeið sem henta byrjendum.

Á öllum þessum námskeiðum lærið þið pole fitness og pole dance alveg frá grunni og þarf enga reynslu í pole eða dansi til að vera með!

Pole Dance 101

Í Pole Dance 101 ráða háir hælar, bodywaves og kynþokkafullar hreyfingar ríkjum og kenndar eru dansrútínur og flæði. Við mælum klárlega með þessum tímum fyrir alla sem elska að dansa.
(18 ára aldurstakmark í Pole Dance 101)

Intro to Pole

Intro to pole eru tímar fyrir þá sem hafa aldrei prufað pole fitness áður. Í þessum tímum lærir þú grundvallartæknina að Pole fitness ásamt því að byggja upp styrk.

Pole Fitness – Level 1

Þetta er námskeið fyrir byrjendur í pole fitness. Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en maður byrjar í level 1 því við vinnum að því að byggja það upp í tímunum. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunnæfingar í polefitness, snúninga og klifur.

  • Intro to Pole - Byrjendanámskeið (Level 1) 4 vikna byrjendanámskeið, kennt 2x í viku

    07. júlí - 30. júlí : þriðudögum og fimmtudögum kl. 19:40
    Byrjendatímar í súlufimi sem henta öllum - óháð formi og getu! Það þarf ekki að hafa sérstakan grunn, styrk eða liðleika til að koma á þetta námskeið. Hér lærir þú að hreyfa þig í kringum súluna alveg frá grunni og ekki gert ráð fyrir að þú hafir neinn bakgrunn í íþróttum eða dansi. Þessi tími hentar fyrir alla! Í þessu fjögurra vikna hraðnámskeiði byrjum við alveg frá grunni og lærum grunnatriðin í pole fitness. Þú munt læra rétta tækni, byrja að byggja upp styrk og uppgötva hvað þessi frábæra íþrótt snýst um. Eftir að hafa lokið þessum átta tímum ættir þú að vera tilbúinn að halda áfram að læra grunnatriðin í follow-up námskeiðinu okkar, Pole Fitness Fundamentals. Innifalið í verði námskeiðsins eru fjögur skipti fyrir flex- og conditioning tíma til að hjálpa þér að byggja upp styrk og liðleika til að hefja súlaferðalagið þitt af krafti! Við höfum nokkra tíma af sitt hvorum í vikunni sem þú getur fundið í stundatöflunni á heimasíðu okkar og skráð þig í þann tíma sem hentar þér. Þessi skipti gilda allar fjórar vikurnar sem námskeiðið stendur yfir.
    PS: All of our instructors speak English and all classes are taught in English unless everyone in the class speaks or is working on Icelandic ;-)
  • Pole Fitness Fundamentals - Byrjendanámskeið Level 2 4 vikna byrjendanámskeið, kennt 2x í viku

    30. júní - 23. júlí : þriðudögum og fimmtudögum kl. 18:35 Pole Fitness Fundamentals er framhalds námskeið eftir Intro to Pole námskeiðin okkar. Þetta námskeið er hannað fyrir þá sem hafa lokið 4 eða 6 vikna Intro námskeiði hjá okkur eða sambærilegu námskeiði í öðru stúdíói. Við munum fara yfir og byggja ofan á þær hreyfingar sem við lærðum í þessum tímum, halda áfram að byggja upp styrk og traustan grunn að færni.
    Innifalið í verði námskeiðsins eru fjögur skipti fyrir flex- og conditioning tíma til að hjálpa þér að byggja upp styrk og liðleika til að hefja súlaferðalagið þitt af krafti! Við höfum nokkra tíma af sitt hvorum í vikunni sem þú getur fundið í stundatöflunni á heimasíðu okkar og skráð þig í þann tíma sem hentar þér. Þessi skipti gilda allar fjórar vikurnar sem námskeiðið stendur yfir.
    PS: All of our instructors speak English and all classes are taught in English unless everyone in the class speaks or is working on Icelandic ;-)

Go to Top