fbpx
  • Aerial Silks – Intermediate 4 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    14. september - 07. óktóber 2026 Mánudagar og miðvikudagar kl. 18:25 - 19:35

    Intermediate námskeiðið er fyrir nemendur sem hafa einhverja grunnreynslu í silki. Mælt er með að koma á kynningarnámskeið (Intro to Silks) og nokkur byrjendatíma áður en komið er á þetta námskeið. Á þessu námskeiði munum við taka silki trikkin upp á næsta stig. Hér munum við læra erfiðari trikk og æfa okkur í að gera samsetningar af trikkum! Við munum skoða mismunandi gerðir af hreyfingum og auka líkamsmeðvitundina í silkinu. Til þess að fara í Aerial silks - Intermediate er mælt með að hafa lokið að minnsta kosti einu Beginner Silki námskeiði og/eða að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til ræða það við sinn þjálfara.
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun og Conditioning fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða special klippikort til að mæta í þessa tíma
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.

  • Intro to Lyra | hefst 29. september!

    Price range: 26.900 kr. through 48.900 kr.

    Intro to Lyra - Byrjendanámskeið 8 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    29. september - 19. nóvember Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17:20 - 18:20 Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma! Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Þetta er alhliða intro- og byrjenda námskeið sem mun undirbúa þig fyrir Mixed Level tímann okkar. Þú getur borgað fyrir helming námskeiðsins núna og hinn helminginn næsta mánuði, eða borgað fyrir allt námskeiðið núna til að fá afslátt! Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!
  • Intro to Aerial Silks - Byrjendanámskeið 4 vikna byrjendanámskeið, kennt 2x í viku

    21 september - 14 óktóber 2026 Mánudagar og miðvikudagar kl. 17:20 - 18:20 Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunn í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í þessu námskeiði því við byggjum það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!
  • Intro to Pole - Byrjendanámskeið (Level 1) 4 vikna byrjendanámskeið, kennt 2x í viku

    06. óktóber - 29. óktóber : þriðudögum og fimmtudögum kl. 19:40
    Byrjendatímar í súlufimi sem henta öllum - óháð formi og getu! Það þarf ekki að hafa sérstakan grunn, styrk eða liðleika til að koma á þetta námskeið. Hér lærir þú að hreyfa þig í kringum súluna alveg frá grunni og ekki gert ráð fyrir að þú hafir neinn bakgrunn í íþróttum eða dansi. Þessi tími hentar fyrir alla! Í þessu fjögurra vikna hraðnámskeiði byrjum við alveg frá grunni og lærum grunnatriðin í pole fitness. Þú munt læra rétta tækni, byrja að byggja upp styrk og uppgötva hvað þessi frábæra íþrótt snýst um. Eftir að hafa lokið þessum átta tímum ættir þú að vera tilbúinn að halda áfram að læra grunnatriðin í follow-up námskeiðinu okkar, Pole Fitness Fundamentals. Innifalið í verði námskeiðsins eru fjögur skipti fyrir flex- og conditioning tíma til að hjálpa þér að byggja upp styrk og liðleika til að hefja súlaferðalagið þitt af krafti! Við höfum nokkra tíma af sitt hvorum í vikunni sem þú getur fundið í stundatöflunni á heimasíðu okkar og skráð þig í þann tíma sem hentar þér. Þessi skipti gilda allar fjórar vikurnar sem námskeiðið stendur yfir.
    PS: All of our instructors speak English and all classes are taught in English unless everyone in the class speaks or is working on Icelandic ;-)

Go to Top