Loftfimleikar hjá Eríal Pole
Langar þig að byrja að æfa loftfimleika en hefur enga fyrri reynslu?
Eríal Pole er pole og loftfimleika stúdíó í hjarta Reykjavíkur. Við höfum verið starfandi síðan 2012 og sérhæfum okkur í pole fitness, pole dans, loftfimleikum eins og Lýru(aerial hoop) og Silki(aerial silks). Einnig erum við með Flex liðleikaþjálfun. Takmörkuð pláss eru á öllum okkar námskeiðum og eru því hóparnir litlir. Við leggjum áherslu á líkamsvirðingu og hvetjandi andrúmsloft. Það skiptir okkur máli að þú náir markmiðunum þínum!
Við erum með einn loftfimleikasal og erum með bæði Aerial Silks og Aerial Hoop. Engin þyngdartakmörk eru á námskeiðunum okkar. Silkin og hringirnir halda vel yfir tonni. Lestu betur um fatnað í tímunum og aðrar upplýsingar í námskeiðislýsingunni hér að neðan.