fbpx

Intro to Lyra | hefst 6. október!

Price range: 26.900 kr. through 48.900 kr.

Intro to Lyra – Byrjendanámskeið
8 vikna námskeið, kennt 2x í viku

06. október – 26. nóvember
Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17:20 – 18:20

Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma!

Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Þetta er alhliða intro- og byrjenda námskeið sem mun undirbúa þig fyrir Mixed Level tímann okkar. Þú getur borgað fyrir helming námskeiðsins núna og hinn helminginn næsta mánuði, eða borgað fyrir allt námskeiðið núna til að fá afslátt! Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!

Description

Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í hringnum er hægt að gera alls konar fallega snúninga, stöður og samsetningar.

Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.

Aðrar hagnýtar upplýsingar

Klæðnaður:
Í þessum tíma er best að vera í síðum leggings eða æfingabuxum og síðum bol. Best er að vera ekki í of víðum fötum því við viljum ekki að fatnaðurinn flækjist fyrir á lyrunni.

Smáa letrið:
Námskeið standa í mislangan tíma og þátttakendur þurfa að kynna sér vel hvort rétt námskeið er valið áður en gengið er frá skráningu. Ekki er hægt að breyta skráningu, færa milli hópa eða tímabila né endurgreiða þegar námskeið er að hefjast eða þegar hafið. Eríal Pole áskilur sér rétt til að fella niður námskeið og staka tíma ef þátttaka telst ekki næg. Vinsamlega kynnið ykkur skilmála Eríal Pole og lýsingu námskeiða áður en gengið er frá skráningu. Ef eitthvað er óljóst bendum við viðskiptavinum á að hafa samband.

Go to Top