Langar þig að æfa pole eða loftfimleika en hefur enga fyrri reynslu? Eftirfarandi námskeið eru fyrir byrjendur!
Eríal Pole er pole og loftfimleika stúdíó í hjarta Reykjavíkur. Við höfum verið starfandi síðan 2012 og sérhæfum okkur í pole fitness, pole dans, loftfimleikum eins og Lýru(aerial hoop) og Silki(aerial silks). Einnig erum við með Flex liðleikaþjálfun sem við mælum klárlega með fyrir alla, því aukin hreyfigeta gerir allar æfingar skemmtilegri! Við leggjum áherslu á líkamsvirðingu og hvetjandi andrúmsloft.
Hér er listi af öllum byrjenda námskeiðunum okkar. Skoðaðu hér neðar á síðunni hvað er í boði hverju sinni.
💪 Pole Fitness Level 1: Vinsælasta námskeiðið okkar! Áhersla á að byggja upp styrk, æfa snúninga, stöður og trikk á súlunni (enginn dans).
🔥Pole dance 101: Kynþokkafullt flæði. Hér lærir þú dansrútínu við seiðandi tónlist, bæði á súlunni og á gólfinu (floorwork).
🎪Aerial Silks loftfimleikar: Lærðu fallegar stöður í silkislæðunum. Skemmtileg leið til að byggja upp styrk í handleggjunum, öxlunum og kviðnum!
Flex liðleikaþjálfun: Hér er farið í styrktar- og teygjuæfingar fyrir splitt, spígat, bak- og axlarliðleika. Þetta námskeið er fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna, það geta allir fundið æfingar við sitt hæfi!
-
Pole Fitness Fundamentals - Byrjendanámskeið Level 2 4 vikna byrjendanámskeið, kennt 2x í viku
30. júní - 23. júlí : þriðudögum og fimmtudögum kl. 18:35 Pole Fitness Fundamentals er framhalds námskeið eftir Intro to Pole námskeiðin okkar. Þetta námskeið er hannað fyrir þá sem hafa lokið 4 eða 6 vikna Intro námskeiði hjá okkur eða sambærilegu námskeiði í öðru stúdíói. Við munum fara yfir og byggja ofan á þær hreyfingar sem við lærðum í þessum tímum, halda áfram að byggja upp styrk og traustan grunn að færni.Innifalið í verði námskeiðsins eru fjögur skipti fyrir flex- og conditioning tíma til að hjálpa þér að byggja upp styrk og liðleika til að hefja súlaferðalagið þitt af krafti! Við höfum nokkra tíma af sitt hvorum í vikunni sem þú getur fundið í stundatöflunni á heimasíðu okkar og skráð þig í þann tíma sem hentar þér. Þessi skipti gilda allar fjórar vikurnar sem námskeiðið stendur yfir.PS: All of our instructors speak English and all classes are taught in English unless everyone in the class speaks or is working on Icelandic ;-)- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við auka conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.