Gefðu upplifun í jólagjöf!

Við erum með fullt af spennandi vörum og námskeiðum sem henta vel í jólapakkann í ár!

Settu athugasemd með þegar þú gengur frá kaupum og við skulum sjá um að pakka inn gjöfinni!

Við erum með mikið úrval af fatnaði frá LUNALAE sem sést með því að smella HÉR.

Einnig erum við með mismunandi gripefni og háhæla skó frá Pleaser sem henta vel fyrir súludansinn! Eins og er, er aðeins hægt að kaupa þá í stúdíóinu hjá okkur að Rauðarárstíg 31 (bakhúsi).

Endilega vertu í bandi ef þú hefur áhuga á að kaupa vöru eða þjónustu hjá okkur en sérð hana ekki hér! erial@erial.is

  • Árskort

    206.000 kr.
    Árskort: kr.  206.000 5x tíma klippikort að andvirði 15.900 fylgir með! Aðgangur að frjálsum tímum fylgir með! Fáðu afslátt af heilu ári af námskeiðum! Þetta kort hentar vel þeim sem vilja æfa af fullum krafti og fá námskeiðin á lægra verði! Árskortið gildir í 12 mánuði og nær yfir 8 námskeiðatímabil. Hvert námskeið stendur yfir í 6 vikur og hægt er að velja um að skrá sig á eitt námskeið sem er 2x í viku eða tvö námskeið sem eru 1x í viku. Það eru 2 valmöguleikar fyrir árskorthafa
    1. Korthafi fær fast pláss á námskeiði. Frábært fyrir þau sem vita að þau vilja bara vera skráð á sama námskeiðið og mögulega færa sig upp um námskeið þegar að því kemur.
    2. Korthafi fær inneign sem korthafi getur ráðstafað að vild til að skrá sig sjálf/ur á þau námskeið sem þau vilja vera skráð á hverju sinni. Hér er meira frelsi til að skipta um námskeið, taka 2 námskeið í einu eða taka sér pásur.
    Láttu okkur vita í athugasemd hvorn valmöguleikan þú vilt velja.
  • Langar þig að ná meiri árangri? Við bjóðum upp á einkatíma í flex, pole, lyru/aerial hoop og silki!  Sendu okkur línu á erial@erial.is fyrir nánari upplýsingar. Segðu okkur hvað þú hefur í huga og við finnum fyrir þig þjálfara sem getur hjálpað þér að ná þínum markmiðum! 
  • Settu inn upphæð að eigin vali

    Við bjóðum upp á námskeið í pole fitness, dansi, liðleikaþjálfun og loftfimleikum.

    Verðhugmynd:

    Námskeið 1x í viku (í 6 vikur) - kr. 18.400 (1x í viku) Námskeið 2x í viku (í 6 vikur) - kr. 29.400 Einkatími með þjálfara - 9.500 kr (60 mín tími). Einnig erum við með gott úrval af gripefnum og fatnaði á verðbilinu kr. 3.900-9.900 og háhæla skó frá kr 15.900-25.900.

    Hagnýtar upplýsingar:

    Gjafabréf í Eríal Pole gildir upp í öll kort, námskeið og vörur í vefverslun Eríal Pole. Afhending: Um leið og greiðsla hefur farið í gegn færð þú gjafabréf með kóða sent í tölvupósti. Skemmtilegt er að skrifa kóðann inn í jólakortið! Einnig getur þú haft samband við erial@erial.is og við sendum þér rafrænt bréf sem þú getur prentað út eða áframsent á viðtakanda. Gildistími á gjafabréf eru 12 mánuðir.
  • X-POLE súla

    99.000 kr.

    Xpert þrýstisúla frá X-Pole - þarf hvorki að skrúfa í gólf né loft!

    X-Pole er leiðandi merki í súluheiminum og er sama merki og við notum í Eríal Pole. Þessi súla er hönnuð til heimanotkunar.
    • Passar í lofthæð frá 2235mm til 2745mm.
    • Húðun: Chrome (silfurlituð)*
    • Þvermál: 45mm.
    • Hægt er að stilla á bæði spin (snúning) og static (föst)
    • Einföld í uppsetningu. Þarft ekki stiga!
    • Örugg og stöðug.
    • Þarf ekki að skrúfa í loft eða gólf.
    • Verð: 99.000,- kr. (24% vsk innifalinn í verði)

    Hafðu samband við erial@erial.is ef þú vilt dreifa greiðslum.

Go to Top