Intro to Lyra - Byrjendanámskeið
3 vikna námskeið, kennt 2x í viku
17. nóvember  - 03. desember | mánudagar kl 18.35 - 19.35  og miðvikudagar kl. 17:10 - 18:10
Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum.  Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma!
Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!