Lýra er loftfimleikahringur sem á rætur sínar að rekja til sirkuslista. Æfingar í lýrunni reyna í senn á jafnvægi, styrk, samhæfingu og liðleika.
Ekki er nauðsynlegt að hafa neinn grunn í öðrum íþróttum eða dansi til að byrja að æfa og bjóðum við fólki á öllum aldri velkomið.
Lyra byrjendur
Hér er farið yfir undirstöðuatriði og grunnæfingar á lýrunni, kenndar aðferðir við að komast inn í hringinn, einfaldar stöður og styrktaræfingar sem hægt er að gera með og í hringnum.
Lýrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma
Lyra framhald
Þetta námskeið fyrir þau sem hafa tekið byrjendanámskeið einusinni eða oftar og eru tilbúin í að reyna við erfiðari lýru æfingar.
Hægt er að skrá sig hér fyrir neðan.
-
Lyra - Framhald 6 vikna námskeið
1. febrúar - 10. mars 2021 Mánudagar og miðvikudagar kl. 19:50-20:50
Þetta er framhaldsnámskeið í Lyru loftfimleikum fyrir alla sem eru tilbúnir að taka æfingarnar á næsta plan! Lýra er loftfimleikahringur sem á rætur sínar að rekja til sirkuslista. Æfingar í lýrunni reyna í senn á jafnvægi, styrk, samhæfingu og liðleika. Í þessum tímum verður farið í fallegar stöður uppi á hringnum sem og flóknari samsetningar. Þetta námskeið fyrir þau sem hafa tekið byrjendanámskeið einusinni eða oftar og eru tilbúin í að reyna við erfiðari lýru æfingar. Mikilvægt er að hafa ráðfært sig við þjálfara áður en þú skráir þig í framhalds hópinn en nauðsynlegt er að vera með ákveðinn grunn áður en farið er í framhald. Hægt er að senda meil á erial@erial.is ef það eru einhverjar spurningar. Hér er farið í erfiðari æfingar í lýrunni ásamt samsetningum og flæði. Klæðnaður í tímanum: Í þessum tíma er best að vera í síðum leggings eða æfingabuxum og síðum bol. Kennari er Lilja Salóme -
Super Hoopers 6 vikna námskeið
1. febrúar - 10. mars 2021 Mánudagar og miðvikudagar kl. 18:40-19:40
Super Hoopers námskeiðið er fyrir alla þá sem hafa lokið byrjenda- og miðstigsnámskeiði í Lyru loftfimleikum og vilja fá meira krefjandi æfingar. Í þessum tímum verður farið í fallegar stöður og flóknar samsetningar í hringnum sem krefjast meiri styrks og liðleika en á námskeiðunum á undan. Útkoman er alveg stórkostleg og árangurinn sést langar leiðir! Klæðnaður: Í þessum tíma er best að vera í síðum leggings eða æfingabuxum og síðum bol. Best er að vera ekki í of víðum fötum því við viljum ekki að fatnaðurinn flækjist fyrir á lyrunni. Þjálfarari: Lilja Salóme ATH. Passaðu vel að réttur hópur sé valinn áður en greitt er.