Hér er að finna þau pole fitness og pole dance námskeið sem eru í boði hjá okkur. Smelltu á námskeiðin hér fyrir neðan til að lesa meira og skrá þig!
Hefurðu aldrei æft súlu eða íþróttir áður? Engar áhyggjur! Það geta allir byrjað í Pole óháð fyrri reynslu! Byrjendanámskeiðin okkar eru Pole Fitness level 1 og Pole Dance 101.
-
Beginner Pole Fitness 4 vikna námskeið, kennt 1x EÐA 2x í viku
31. mars - 23. apríl 2026 þriðjudagar kl. 17:10-18:20 og/eða fimmtudagar kl. 19:40-20:50
Þetta námskeið er fyrir þau sem eru búin með Intro to Pole námskeið. Á þessu námskeiði höldum við áfram að æfa trikk úr Intro, æfum við okkur í að klifra, byggjum upp styrk og prófum að fara á hvolf í fyrsta sinn! Til þess að fara í Beginner er nauðsynlegt að hafa lokið Intro og að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til að tala við sinn þjálfara til þess að fá mat. Þú getur valið að skrá þig í 1 eða 2 tíma á viku. Ef þú hefur aðeins tíma til að mæta einu sinni í viku munt þú samt læra allt sem þarf til að komast áfram í byrjendanámskeið. Þetta er frábær kostur fyrir þá sem eru með 2-2-3 vaktir!- Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Mælum með Flex Liðleikaþjálfun og Conditioning Styrktarþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu special klippikort til mæta í þennan tímar.
- Vilt þú æfa á betra verði? Kauptu mánaðarkort hér eða skráðu þig í áskrift hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Intro to Pole - Byrjendanámskeið 6 vikna byrjendanámskeið, kennt 1x í viku
31. mars - 05. apríl : þriðudögum kl. 19:40Byrjendatímar í súlufimi sem henta öllum - óháð formi og getu! Það þarf ekki að hafa sérstakan grunn, styrk eða liðleika til að koma á þetta námskeið. Hér lærir þú að hreyfa þig í kringum súluna alveg frá grunni og ekki gert ráð fyrir að þú hafir neinn bakgrunn í íþróttum eða dansi. Þessi tími hentar fyrir alla!Innifalið í verði námskeiðsins eru fjögur miðar fyrir flex- og conditioning tíma til að hjálpa þér að byggja upp styrk og liðleika til að hefja súlaferðalagið þitt af krafti! Við höfum nokkrar lotur af báðum í vikunni sem þú getur fundið á stundatöflunni á heimasíðu okkar og skráð þig á tíma sem hentar þér. Þessi miðar gilda allar sex vikurnar sem námskeiðið stendur yfir.PS: All of our instructors speak English and all classes are taught in English unless everyone in the class speaks or is working on Icelandic ;-)- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við auka conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Pole Dance 101 - Námskeið fyrir byrjendur 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku
01. apríl - 06. maí 2026 : miðvikudagur kl. 19:40
Í Pole Dance 101 ráða háir hælar, bodywaves og hársveiflur ríkjum og kenndar eru dansrútínur og kynþokkafullt flæði á súlunni og gólfinu. Á þessu námskeiði lærir þú súludans og floorwork alveg frá grunni og þarf enga reynslu til að vera með! Ávinningur þess að stunda pole dance er meira sjálfstraust, sterkari líkami og meiri liðleiki! Komdu og lærðu fyrsta snúninginn þinn hjá okkur! Við mælum klárlega með þessum tímum fyrir alla sem elska að dansa! Skráðu þig í dag til að tryggja þér pláss á námskeiðinu!