fbpx
  • Intro to Aerial Silks - Byrjendanámskeið 3 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    10. - 26. febrúar | þriðjudagar og fimmtudagar kl. 19:30 - 20:30

    Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunn í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í þessu námskeiði því við byggjum það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!
  • Intro to Lyra - Byrjendanámskeið 3 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    02. - 18. febrúar | mánudagar kl 18.35 - 19.35  og miðvikudagar kl. 17:20 - 18:20

    Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma! Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!

Go to Top