• Tilboð!

    BIÐLISTI

    Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið með því að setja það í körfu og ganga frá pöntuninni. Ath engin greiðsla á sér stað.

    Við höfum samband um leið og við opnum fyrir skráningu!

     

    Aerial Hoop - Mixed (miðstig – framhald) 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    19. nóvember - 20. desember 2023 Sunnudagar kl. 16:00-17:00*

    *Vegna jóla verður síðasti tími námskeiðisins miðvikudaginn 20. desember kl. 18:20.

    Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í hringnum er hægt að gera alls konar fallega snúninga, stöður og samsetningar. Við erum bara með einn hóp í Aerial Hoop eins og er. Sá hópur með blönduðu getustigi, en flestir í hópnum eru á mið/framhaldsstigi. Á þessu námskeiði munum við taka lyru trikkin upp á næsta stig. Hér munum við læra erfiðari trikk og æfa okkur í að gera samsetningar af trikkum! Við munum skoða mismunandi gerðir af hreyfingum og auka líkamsmeðvitundina í hringnum. Til þess að fara í aerial hoop - mixed er mikilvægt að hafa náð tökum á grunninum í aerial hoop og hafa góðan styrk. Athugið að á þessu námskeiði getur komið til þess að nemendur þurfi að deila lyru með öðrum nemendum.  
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið.
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
       
  • Ert þú að fara að gæsa/ steggja í haust? Hóptímar í Eríal Pole eru frábær skemmtun! Við tökum vel á móti gæsahópum, steggjahópum, vinahópum og vinnuhópum! Allir tímarnir eru ætlaðir fyrir byrjendur og geta því allir verið með! Við höfum margra ára reynslu á því að taka hópa svo við lofum ykkur góðri skemmtun, sjóðheitum myndum og fullt af hlátri! Pole hópskemmtun tilvalið fyrir Gæsa og Steggja hópa. Lærðu fyrstu stöðurnar og snúningana í súludansi! Tíminn er skemmtileg blanda af Pole Fitness og Pole Dance, þar sem þið munið læra sjóðheit danspor og flotta snúninga í kringum súluna! Svo bjóðum við gæsinni/steggnum að vera með smá sýningu fyrir hópinn sem er skemmtilegt að taka upp (jafnvel sýna í brúðkaupinu!). Svo í lok tímans eru teknar hópmyndir sem er alltaf mjög vinsælt! Silki hópskemmtun tilvalið fyrir Gæsa og Steggja hópa. Lærðu fyrstu skrefin og pósurnar í silkinu! Tilvalið fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt! Í silkinu munum við gera læra að klifra upp silkið og gera fallegar og seiðandi pósur í loftinu og jafnframt fara á hvolf! Svo bjóðum við gæsinni/steggnum að vera með smá sýningu fyrir hópinn sem er skemmtilegt að taka upp (jafnvel sýna í brúðkaupinu!). Í lok tímans eru teknar hópmyndir sem er alltaf mjög vinsælt! Sendu okkur fyrirspurn núna á erial@erial.is eða hafðu samband með því að setja í körfuna og fylla út upplýsingarnar (ath engin greiðsla á sér stað). Við svörum þér við fyrsta tækifæri og hlökkum mjög til að heyra í þér! Verið velkomin í nýja stúdíóið okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Rvk!
  • Tilboð!
    flex

    Flex - liðleiki og styrkur 4 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    • 27. nóvember - 18. desember 2023 Mánudagar kl. 20:30 - 21:30

    • 1. desember - 21. desember 2023 Föstudagar kl. 17:30 - 18:30*

    *Vegna jóla verður síðasti tími námskeiðisins fimmtudaginn 21. desember kl. 18:20.

    Flex liðleikaþjálfun er hin fullkomna viðbót til að æfa samhliða öðrum íþróttum og sérstaklega í súlu og loftfimleikum. Aukin hreyfigeta gerir allt svo mikið auðveldara! Flex er ekki bara fyrir þau sem eru þegar liðug því það geta allir bætt liðleikann sinn. Lögð er áhersla á aktívar styrktar og liðleikaæfingar. Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu!  
  • Áskrift hjá Eríal Pole

    5.000 kr.34.400 kr.

    ÓTÍMABUNDIN ÁSKRIFT

    Námskeið 1x í viku - kr. 10.600 á mánuði Verð per námskeið 16.900. Gildir fyrir námskeið sem er 1x í viku. Athugið að ekki er hægt að nýta áskrift sem er einu sinni í viku fyrir námskeið sem er 2x í viku. Námskeið 2x í viku - kr. 17.200 á mánuði Verð per námskeið 27.900. Gildir fyrir námskeið sem er 2x í viku eða fyrir tveimur 1x námskeiðum í viku.  Námskeið 3x í viku - kr. 27.800 á mánuði (kaupauki: 5 tíma klippikort fylgir fyrstu kaupum!) Verð per námskeið 27.900+16900.   Gildir fyrir námskeið sem er 2x í viku og 1x í viku, eða þrisvar 1x í viku. Námskeið 4x í viku - kr. 34.400 á mánuði (kaupauki: 10 tíma klippikort fylgir fyrstu kaupum!) Verð per námskeið er 27900*2. Gildir fyrir tvö námskeið sem eru 2x í viku, eða eitt námskeið 2x í viku og tvö 1x í viku námskeið. Lyklaaðgangur: Bættu lyklaaðgangi við áskriftina þína fyrir 5000kr á mánuði. Lágmark 6 mánaða binditími.

    Lágmarksbinditími er 6 mánuðir (4 námskeið).

    Áskriftargjöld eru greidd fyrirfram. Nemendur greiða fyrstu greiðslu hér en framtíðargreiðslur koma til greiðslu í heimabanka 15.dag hvers mánaðar fyrir komandi mánuð. Eindagi reikninga verður 2.dag hvers mánaðar. Með því að staðfesta og greiða þessa áskrift samþykkir þú skilmála Eríal Pole sem eru hér að neðan.

    Við viljum biðja nemendur um að skrifa í athugasemd kennitölu og námskeið sem þau vilja vera skráð á.

       
  • Langar þig að ná meiri árangri? Við bjóðum upp á semi-einkatíma fyrir tvo nemendur  í flex, pole, lyru og silki! Frábært fyrir æfingarfélaga sem vilja ná meiri árangri.  Verð er 8000 kr. per nemenda. Sendu okkur línu á erial@erial.is fyrir nánari upplýsingar. Segðu okkur hvað þú hefur í huga og við finnum fyrir þig þjálfara sem getur hjálpað þér að ná þínum markmiðum!   
  • Langar þig að ná meiri árangri? Við bjóðum upp á einkatíma í flex, pole, lyru/aerial hoop og silki!  Sendu okkur línu á erial@erial.is fyrir nánari upplýsingar. Segðu okkur hvað þú hefur í huga og við finnum fyrir þig þjálfara sem getur hjálpað þér að ná þínum markmiðum! 
  • X-POLE súla

    99.000 kr.

    Xpert þrýstisúla frá X-Pole - þarf hvorki að skrúfa í gólf né loft!

    X-Pole er leiðandi merki í súluheiminum og er sama merki og við notum í Eríal Pole. Þessi súla er hönnuð til heimanotkunar.
    • Passar í lofthæð frá 2235mm til 2745mm.
    • Húðun: Chrome (silfurlituð)*
    • Þvermál: 45mm.
    • Hægt er að stilla á bæði spin (snúning) og static (föst)
    • Einföld í uppsetningu. Þarft ekki stiga!
    • Örugg og stöðug.
    • Þarf ekki að skrúfa í loft eða gólf.
    • Verð: 99.000,- kr. (24% vsk innifalinn í verði)

    Hafðu samband við erial@erial.is ef þú vilt dreifa greiðslum.

  • Við bjóðum upp á námskeið í pole fitness, dansi, liðleikaþjálfun og loftfimleikum! Námskeiðin okkar kosta á bilinu kr. 16.900 (1x í viku) - kr. 27.900 (2x í viku) og standa yfir í 6 vikur. Einkatími með þjálfara kostar 9.500 kr (1x 60 min tími) Einnig erum við með gott úrval af fatnaði og gripefnum á verðbilinu kr. 2.900-7.900 og háhæla skó frá kr 11.900-21.900. Settu inn upphæð að eigin vali! Hagnýtar upplýsingar: Gjafabréf í Eríal Pole gildir upp í öll kort, námskeið og vörur í vefverslun Eríal Pole. Þú getur prentað gjafabréfið út eða áframsent það á tölvupóst viðtakanda. Einnig er hægt að fá fallegt handskrifað gjafabréf í afgreiðslu Eríal Pole, að Rauðarárstíg 31 (bakhúsi), en við biðjum þig um að láta okkur vita í gegnum tölvupóst á erial@erial.is svo við getum haft það tilbúið fyrir þig! Gildistími á gjafabréf eru 18 mánuðir.

Go to Top