Lýra er loftfimleikahringur sem á rætur sínar að rekja til sirkuslista. Æfingar í hringnum reyna í senn á jafnvægi, styrk, samhæfingu og liðleika.
Við erum bara með einn hóp í Aerial Hoop eins og er. Sá hópur með blönduðu getustigi, en flestir í hópnum eru á mið/framhaldsstigi. Til þess að komast í hópinn er mikilvægt að hafa náð tökum á grunninum í aerial hoop og hafa góðan styrk. Við munum halda grunnnámskeið þegar næg þátttaka næst.
Hlökkum til að sjá þig!
-
Aerial Hoop - Mixed (miðstig – framhald) 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku
26. maí - 30. júní 2024 Sunnudagar kl. 16:00-17:00
Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í hringnum er hægt að gera alls konar fallega snúninga, stöður og samsetningar. Við erum bara með einn hóp í Aerial Hoop eins og er. Sá hópur með blönduðu getustigi, en flestir í hópnum eru á mið/framhaldsstigi. Á þessu námskeiði munum við taka lyru trikkin upp á næsta stig. Hér munum við læra erfiðari trikk og æfa okkur í að gera samsetningar af trikkum! Við munum skoða mismunandi gerðir af hreyfingum og auka líkamsmeðvitundina í hringnum. Til þess að fara í aerial hoop - mixed er mikilvægt að hafa náð tökum á grunninum í aerial hoop og hafa góðan styrk. Athugið að á þessu námskeiði getur komið til þess að nemendur þurfi að deila lyru með öðrum nemendum.- Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið.
- Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.