Verðskrá Eríal Pole
Smelltu á myndina til að stækka!
- Nú getur þú skráð þig í ótímabundina áskrift hjá Eríal Pole!
- Sjáðu hvaða námskeið eru í boði með því að smella hér!
-
Við bjóðum upp á námskeið í pole fitness, dansi, liðleikaþjálfun og loftfimleikum! Námskeiðin okkar kosta á bilinu kr. 16.900 (1x í viku) - kr. 27.900 (2x í viku) og standa yfir í 6 vikur. Einkatími með þjálfara kostar 9.500 kr (1x 60 min tími) Einnig erum við með gott úrval af fatnaði og gripefnum á verðbilinu kr. 2.900-7.900 og háhæla skó frá kr 11.900-21.900. Settu inn upphæð að eigin vali! Hagnýtar upplýsingar: Gjafabréf í Eríal Pole gildir upp í öll kort, námskeið og vörur í vefverslun Eríal Pole. Þú getur prentað gjafabréfið út eða áframsent það á tölvupóst viðtakanda. Einnig er hægt að fá fallegt handskrifað gjafabréf í afgreiðslu Eríal Pole, að Rauðarárstíg 31 (bakhúsi), en við biðjum þig um að láta okkur vita í gegnum tölvupóst á erial@erial.is svo við getum haft það tilbúið fyrir þig! Gildistími á gjafabréf eru 18 mánuðir.
-
ÓTÍMABUNDIN ÁSKRIFT
Námskeið 1x í viku - kr. 10.600 á mánuði Verð per námskeið 16.900. Gildir fyrir námskeið sem er 1x í viku. Athugið að ekki er hægt að nýta áskrift sem er einu sinni í viku fyrir námskeið sem er 2x í viku. Námskeið 2x í viku - kr. 17.200 á mánuði Verð per námskeið 27.900. Gildir fyrir námskeið sem er 2x í viku eða fyrir tveimur 1x námskeiðum í viku. Námskeið 3x í viku - kr. 27.800 á mánuði (kaupauki: 5 tíma klippikort fylgir fyrstu kaupum!) Verð per námskeið 27.900+16900. Gildir fyrir námskeið sem er 2x í viku og 1x í viku, eða þrisvar 1x í viku. Námskeið 4x í viku - kr. 34.400 á mánuði (kaupauki: 10 tíma klippikort fylgir fyrstu kaupum!) Verð per námskeið er 27900*2. Gildir fyrir tvö námskeið sem eru 2x í viku, eða eitt námskeið 2x í viku og tvö 1x í viku námskeið. Lyklaaðgangur: Bættu lyklaaðgangi við áskriftina þína fyrir 5000kr á mánuði. Lágmark 6 mánaða binditími.Lágmarksbinditími er 6 mánuðir (4 námskeið).
Áskriftargjöld eru greidd fyrirfram. Nemendur greiða fyrstu greiðslu hér en framtíðargreiðslur koma til greiðslu í heimabanka 15.dag hvers mánaðar fyrir komandi mánuð. Eindagi reikninga verður 2.dag hvers mánaðar. Með því að staðfesta og greiða þessa áskrift samþykkir þú skilmála Eríal Pole sem eru hér að neðan.Við viljum biðja nemendur um að skrifa í athugasemd kennitölu og námskeið sem þau vilja vera skráð á.
Eftir þetta námskeiðstímabil munum við flytja í nýtt húsnæði. Námskeið sem hefjast 28. júní og síðar verða haldin í nýja stúdíóinu okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar verða sendar á alla nemendur. -
Nú geta nemendur keypt 6 vikna lyklaaðgang að Eríal Pole og komið utan opnunartíma til að æfa.
- Nemendur skráðir á námskeið geta keypt 6 vikna lyklaaðgang sem er virkur samhliða námskeiðstímabilinu.
- Nemandi þarf að hafa tekið amk 3 námskeið hjá Eríal og starfsfólk metið það svo að nemandi sé hæf/ur til að æfa á eigin vegum.
- Nemandi hittir starfsmann hjá Eríal á öryggisfundi þar sem farið verður yfir öll öryggisatriði í stúdíóinu. Þú lærir meðal annars að opna og loka stúdíóinu, setja upp aerial áhöld eða setja á spin og static.
- Æfingar í Stúdíóinu eru á eigin ábyrgð og þarf nemandi að skrifa undir skilmála Eríal Pole áður en hann fær aðganginn.
-
Klippikort
5 tímar – gildistími 3 mánuðir 15.900 kr Klippikortin eru tilvalin fyrir þau sem vilja hafa meiri sveigjanleika og einnig frábær viðbót fyrir þau sem eru á námskeiði og vilja mæta í auka tíma. Hægt er að nota klippikortin til þess að mæta í staka tíma á námskeiði, drop in í flex tíma eða í opna tíma! Kortin eru rafræn og skráningarforritið tekur sjálfkrafa skipti af kortinu þínu þegar þú kemur í tíma. Smelltu á stundatöfluna til að stækka hana.Ath. að í júní 2023 munum við flytja í nýtt húsnæði að Hallgerðargötu 23. Klippikortin fást ekki endurgreidd.
-
Klippikort
10 tímar – gildistími 6 mánuðir 27.900kr Klippikortin eru tilvalin fyrir þau sem vilja hafa meiri sveigjanleika og einnig frábær viðbót fyrir þau sem eru á námskeiði og vilja mæta í auka tíma. Hægt er að nota klippikortin til þess að mæta í staka tíma á námskeiði, drop in í flex tíma eða í opna tíma! Kortin eru rafræn og skráningarforritið tekur sjálfkrafa skipti af kortinu þínu þegar þú kemur í tíma. Smelltu á stundatöfluna til að stækka hana.Ath. að í júní 2023 munum við flytja í nýtt húsnæði að Hallgerðargötu 23. Klippikortin fást ekki endurgreidd.
-
Árskort: kr. 206.000 5x tíma klippikort að andvirði 15.900 fylgir með! Aðgangur að frjálsum tímum fylgir með! Fáðu afslátt af heilu ári af námskeiðum! Þetta kort hentar vel þeim sem vilja æfa af fullum krafti og fá námskeiðin á lægra verði! Árskortið gildir í 12 mánuði og nær yfir 8 námskeiðatímabil. Hvert námskeið stendur yfir í 6 vikur og hægt er að velja um að skrá sig á eitt námskeið sem er 2x í viku eða tvö námskeið sem eru 1x í viku. Það eru 2 valmöguleikar fyrir árskorthafa
- Korthafi fær fast pláss á námskeiði. Frábært fyrir þau sem vita að þau vilja bara vera skráð á sama námskeiðið og mögulega færa sig upp um námskeið þegar að því kemur.
- Korthafi fær inneign sem korthafi getur ráðstafað að vild til að skrá sig sjálf/ur á þau námskeið sem þau vilja vera skráð á hverju sinni. Hér er meira frelsi til að skipta um námskeið, taka 2 námskeið í einu eða taka sér pásur.