Pole Fitness – Level 4
5 vikna námskeið, kennt 2x í viku
23. maí – 29. júní 2022
Mánudagar & miðvikudagar kl. 18:20-19:20
ATH! Tími fellur niður Mánudaginn 6.júní, Hvítasunnudagur. Nemendur fá einn stakann tíma á reikninginn sinn í stað uppbótartíma.
Þetta framhalds námskeið er fyrir þau sem eru búin með námskeið í Level 3 og eru meðal annars orðin örugg í því að fara á hvolf og sleppa höndum. Í level 4 eru m.a kennd handspring, aerial shouldermount , jade, extended alegra og ayesha.
Til þess að fara í level 4 er nauðsynlegt að hafa lokið level 3 og að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til að tala við sinn þjálfara til þess að fá mat.
KAUPAUKI! Frjálsir tímar í stundatöflu fylgja frítt með öllum keyptum námskeiðum! Nú getur þú æft oftar í viku fyrir sama verð!
Við mælum með að framhaldsnemendur taki Flex liðleikaþjálfunartímann sem er strax eftir level 4 tímann kl 19:30. Kauptu KLIPPIKORT eða SKRÁÐU ÞIG Á ALLT NÁMSKEIÐIÐ!
Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.