Loftfimleikar hjá Eríal Pole
Langar þig að byrja að æfa loftfimleika en hefur enga fyrri reynslu?
Eríal Pole er pole og loftfimleika stúdíó í hjarta Reykjavíkur. Við höfum verið starfandi síðan 2012 og sérhæfum okkur í pole fitness, pole dans, og Silki (aerial silks). Einnig erum við með Flex liðleikaþjálfun. Takmörkuð pláss eru á öllum okkar námskeiðum og eru því hóparnir litlir. Við leggjum áherslu á líkamsvirðingu og hvetjandi andrúmsloft. Það skiptir okkur máli að þú náir markmiðunum þínum!
Engin þyngdartakmörk eru á námskeiðunum okkar. Silkin halda vel yfir tonni. Lestu betur um fatnað í tímunum og aðrar upplýsingar í námskeiðislýsingunni hér að neðan.
-
Tilboð!
BIÐLISTI
Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið með því að setja það í körfu og ganga frá pöntuninni. Ath engin greiðsla á sér stað. Við höfum samband um leið og við opnum fyrir skráningu!
Intro to Lyra - Byrjendanámskeið 4 vikna námskeið, kennt 1x í viku
Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma! Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!- Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
- Kauptu klippikort eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Tilboð!
Biðlisti
Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið með því að setja það í körfu og ganga frá pöntuninni. Ath engin greiðsla á sér stað.
Við höfum samband um leið og við opnum fyrir skráningu!
Intro to Aerial Silks - Byrjendanámskeið 3 vikna námskeið, kennt 2x í viku
27. maí - 12. júní | þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17:10
Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunn í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í þessu námskeiði því við byggjum það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!- Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
- Kauptu klippikort eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við nokkrum conditioning og flex tímum.
- Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Aerial Silks – Byrjendur 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku
01. júlí - 07. ágúst 2024 Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 18:25 - 19:35
Byrjendanámskeiðið er fyrir nemendur sem hafa einhverja grunnreynslu í silki. Mælt er með að koma á kynningarnámskeið (Intro to Silks) áður en komið er á þetta námskeið. Á þessu námskeiði munum við taka silki trikkin upp á næsta stig. Hér munum við læra erfiðari trikk og æfa okkur í að gera samsetningar af trikkum! Við munum skoða mismunandi gerðir af hreyfingum og auka líkamsmeðvitundina í silkinu. Til þess að fara í Aerial silks - Byrjendur er mælt með að hafa lokið að minnsta kosti einu Intro námskeiði og/eða að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til ræða það við sinn þjálfara.- Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Mælum með Flex Liðleikaþjálfun og Conditioning fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða special klippikort til að mæta í þessa tíma
- Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
ÓTÍMABUNDIN ÁSKRIFT
1x í viku / 5x á mánuði - 12.900 kr á mánuði 2x í viku / 9x á mánuði - 19.800 kr á mánuði 3x í viku / 14x á mánuði - 29.900 kr á mánuði Ótakmarkaðir tímar - 39.900 kr á mánuði Lyklaaðgangur: Bættu lyklaaðgangi við áskriftina þína fyrir 6.000kr á mánuði. Lágmark 6 mánaða binditími.ATH: Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega til að tryggja að þetta sé rétti kosturinn fyrir þig.
NOTE: Please read the terms and conditions carefully to ensure this is the right option for you.
Lágmarksbinditími er 6 mánuðir. Uppsagnarfrestur eru þrír mánuðir.
Minimum commitment period is 6 months. Cancellation notice period is 3 months.
Áskriftargjöld eru greidd fyrirfram. Nemendur greiða fyrstu greiðslu hér en framtíðargreiðslur koma til greiðslu í heimabanka 1. dag hvers mánaðar fyrir komandi mánuð. Eindagi reikninga verður 5. dag hvers mánaðar. Með því að staðfesta og greiða þessa áskrift samþykkir þú skilmála Eríal Pole sem eru hér að neðan.Við viljum biðja nemendur um að skrifa í athugasemd kennitölu og aðrar hagnýtar upplýsingar.
Please write your kennitala and anything else we should know in the comments.