fbpx
  • Intro to Lyra - Byrjendanámskeið

    Biðlisti

    Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið með því að setja það í körfu og ganga frá pöntuninni. Ath engin greiðsla á sér stað. Við höfum samband um leið og við opnum fyrir skráningu!

    Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma! Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!
  • Intro to Aerial Silks - Byrjendanámskeið

    Biðlisti

    Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið með því að setja það í körfu og ganga frá pöntuninni. Ath engin greiðsla á sér stað. Við höfum samband um leið og við opnum fyrir skráningu!

    Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunn í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í þessu námskeiði því við byggjum það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!
  • Intro to Pole - Byrjendanámskeið (Level 1) 4 vikna byrjendanámskeið, kennt 2x í viku

    18. ágúst - 10. september : þriðudögum og fimmtudögum kl. 19:40
    Byrjendatímar í súlufimi sem henta öllum - óháð formi og getu! Það þarf ekki að hafa sérstakan grunn, styrk eða liðleika til að koma á þetta námskeið. Hér lærir þú að hreyfa þig í kringum súluna alveg frá grunni og ekki gert ráð fyrir að þú hafir neinn bakgrunn í íþróttum eða dansi. Þessi tími hentar fyrir alla! Í þessu fjögurra vikna hraðnámskeiði byrjum við alveg frá grunni og lærum grunnatriðin í pole fitness. Þú munt læra rétta tækni, byrja að byggja upp styrk og uppgötva hvað þessi frábæra íþrótt snýst um. Eftir að hafa lokið þessum átta tímum ættir þú að vera tilbúinn að halda áfram að læra grunnatriðin í follow-up námskeiðinu okkar, Pole Fitness Fundamentals. Innifalið í verði námskeiðsins eru fjögur skipti fyrir flex- og conditioning tíma til að hjálpa þér að byggja upp styrk og liðleika til að hefja súlaferðalagið þitt af krafti! Við höfum nokkra tíma af sitt hvorum í vikunni sem þú getur fundið í stundatöflunni á heimasíðu okkar og skráð þig í þann tíma sem hentar þér. Þessi skipti gilda allar fjórar vikurnar sem námskeiðið stendur yfir.
    PS: All of our instructors speak English and all classes are taught in English unless everyone in the class speaks or is working on Icelandic ;-)
  • Pole Dance 101 - Námskeið fyrir byrjendur 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    16. júlí - 20. ágúst 2026 : fimmtudagur kl. 19:40

    Í Pole Dance 101 ráða háir hælar, bodywaves og hársveiflur ríkjum og kenndar eru dansrútínur og kynþokkafullt flæði á súlunni og gólfinu. Á þessu námskeiði lærir þú súludans og floorwork alveg frá grunni og þarf enga reynslu til að vera með! Ávinningur þess að stunda pole dance er meira sjálfstraust, sterkari líkami og meiri liðleiki! Komdu og lærðu fyrsta snúninginn þinn hjá okkur! Við mælum klárlega með þessum tímum fyrir alla sem elska að dansa! Skráðu þig í dag til að tryggja þér pláss á námskeiðinu!  

Go to Top