-
Intro to Pole - Byrjendanámskeið 6 vikna byrjendanámskeið, kennt 1x eða 2x í viku
17. febrúar - 26. mars : þriðudögum kl. 19:40 og fimmtudögum kl. 17:10Byrjendatímar í súlufimi sem henta öllum - óháð formi og getu! Það þarf ekki að hafa sérstakan grunn, styrk eða liðleika til að koma á þetta námskeið. Hér lærir þú að hreyfa þig í kringum súluna alveg frá grunni og ekki gert ráð fyrir að þú hafir neinn bakgrunn í íþróttum eða dansi. Þessi tími hentar fyrir alla!Þú getur valið að skrá þig í 1 eða 2 tíma á viku. Sama efnið verður kennt í báðum tímum í hverri viku, svo ef þú sækir báða munt þú ná hraðari árangri í námi með endurtekningu. Ef þú hefur aðeins tíma til að mæta einu sinni í viku munt þú samt læra allt sem þarf til að komast áfram í byrjendanámskeið. Þetta er frábær kostur fyrir þá sem eru með 2-2-3 tíma!Innifalið í verði námskeiðsins eru fjögur miðar fyrir flex- og conditioning tíma til að hjálpa þér að byggja upp styrk og liðleika til að hefja súlaferðalagið þitt af krafti! Við höfum nokkrar lotur af báðum í vikunni sem þú getur fundið á stundatöflunni á heimasíðu okkar og skráð þig á tíma sem hentar þér. Þessi miðar gilda allar sex vikurnar sem námskeiðið stendur yfir.PS: All of our instructors speak English and all classes are taught in English unless everyone in the class speaks or is working on Icelandic ;-)- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við auka conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Intro to Aerial Silks - Byrjendanámskeið 3 vikna námskeið, kennt 2x í viku
10. - 26. febrúar | þriðjudagar og fimmtudagar kl. 19:30 - 20:30
Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunn í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í þessu námskeiði því við byggjum það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við nokkrum conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Intro to Lyra - Byrjendanámskeið 3 vikna námskeið, kennt 2x í viku
02. - 18. febrúar | mánudagar kl 18.35 - 19.35 og miðvikudagar kl. 17:20 - 18:20
Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma! Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við nokkrum conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.