fbpx
  • Intro to Pole | hefst 17. eða 19. febrúar!

    Price range: 23.900 kr. through 39.800 kr.

    Intro to Pole - Byrjendanámskeið 6 vikna byrjendanámskeið, kennt 1x eða 2x í viku

    17. febrúar - 26. mars : þriðudögum kl. 19:40 og fimmtudögum kl. 17:10
    Byrjendatímar í súlufimi sem henta öllum - óháð formi og getu! Það þarf ekki að hafa sérstakan grunn, styrk eða liðleika til að koma á þetta námskeið. Hér lærir þú að hreyfa þig í kringum súluna alveg frá grunni og ekki gert ráð fyrir að þú hafir neinn bakgrunn í íþróttum eða dansi. Þessi tími hentar fyrir alla!
    Þú getur valið að skrá þig í 1 eða 2 tíma á viku. Sama efnið verður kennt í báðum tímum í hverri viku, svo ef þú sækir báða munt þú ná hraðari árangri í námi með endurtekningu. Ef þú hefur aðeins tíma til að mæta einu sinni í viku munt þú samt læra allt sem þarf til að komast áfram í byrjendanámskeið. Þetta er frábær kostur fyrir þá sem eru með 2-2-3 tíma!
    Innifalið í verði námskeiðsins eru fjögur miðar fyrir flex- og conditioning tíma til að hjálpa þér að byggja upp styrk og liðleika til að hefja súlaferðalagið þitt af krafti! Við höfum nokkrar lotur af báðum í vikunni sem þú getur fundið á stundatöflunni á heimasíðu okkar og skráð þig á tíma sem hentar þér. Þessi miðar gilda allar sex vikurnar sem námskeiðið stendur yfir.
    PS: All of our instructors speak English and all classes are taught in English unless everyone in the class speaks or is working on Icelandic ;-)
  • Pole Dance 101 - Námskeið fyrir byrjendur 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    18. febrúar - 25. mars 2026 : miðvikudagur kl. 19:40

    Í Pole Dance 101 ráða háir hælar, bodywaves og hársveiflur ríkjum og kenndar eru dansrútínur og kynþokkafullt flæði á súlunni og gólfinu. Á þessu námskeiði lærir þú súludans og floorwork alveg frá grunni og þarf enga reynslu til að vera með! Ávinningur þess að stunda pole dance er meira sjálfstraust, sterkari líkami og meiri liðleiki! Komdu og lærðu fyrsta snúninginn þinn hjá okkur! Við mælum klárlega með þessum tímum fyrir alla sem elska að dansa! Skráðu þig í dag til að tryggja þér pláss á námskeiðinu!  
  • Intro to Aerial Silks - Byrjendanámskeið 3 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    10. - 26. febrúar | þriðjudagar og fimmtudagar kl. 19:30 - 20:30

    Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunn í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í þessu námskeiði því við byggjum það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!
  • Intro to Lyra - Byrjendanámskeið 3 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    02. - 18. febrúar | mánudagar kl 18.35 - 19.35  og miðvikudagar kl. 17:20 - 18:20

    Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma! Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!

Go to Top