-
Settu inn upphæð að eigin vali
Við bjóðum upp á tíma í pole fitness, pole dansi, loftfimleikum (Lyru og Silki), liðleikaþjálfun og styrktarþjálfun.Verðhugmynd:
Byrjendanámskeið - 1x í viku í 4 vikur - kr. 16.900 Mánaðarkort - 2x í viku - kr. 26.300 Mánaðarkort - ótakmarkaður fjöldi tíma í viku - kr. 59.900 Einkatími með þjálfara - 12.500 kr (60 mín tími). Einnig erum við með gott úrval af gripefnum og fatnaði á verðbilinu kr. 3.900-9.900 og háhæla skó frá kr 15.900-25.900.Hagnýtar upplýsingar:
Gjafabréf í Eríal Pole gildir upp í öll kort, námskeið og vörur í vefverslun Eríal Pole. Afhending: Um leið og greiðsla hefur farið í gegn færð þú gjafabréf með kóða sent í tölvupósti. Skemmtilegt er að skrifa kóðann inn í jólakortið! Einnig getur þú haft samband við erial@erial.is og við sendum þér rafrænt bréf sem þú getur prentað út eða áframsent á viðtakanda. Gildistími á gjafabréf eru 12 mánuðir. -
Xpert þrýstisúla frá X-Pole - þarf hvorki að skrúfa í gólf né loft!
X-Pole er leiðandi merki í súluheiminum og er sama merki og við notum í Eríal Pole. Þessi súla er hönnuð til heimanotkunar.- Passar í lofthæð frá 2235mm til 2745mm. (Ef lofthæð þín er hærri, hafðu samband við okkur og við getum pantað framlengingu)
- Húðun: Chrome (silfurlituð)*
- Þvermál: 45mm.
- Hægt er að stilla á bæði spin (snúning) og static (föst)
- Einföld í uppsetningu. Þarft ekki stiga!
- Örugg og stöðug.
- Þarf ekki að skrúfa í loft eða gólf.
- Verð: 99.000,- kr. (24% vsk innifalinn í verði)
Hafðu samband við erial@erial.is ef þú vilt dreifa greiðslum.
-
Langar þig að ná meiri árangri? Við bjóðum upp á einkatíma í flex, pole, lyru/aerial hoop og silki! Sendu okkur línu á erial@erial.is fyrir nánari upplýsingar. Segðu okkur hvað þú hefur í huga og við finnum fyrir þig þjálfara sem getur hjálpað þér að ná þínum markmiðum! Verð: 12.500 kr Verð fyrir áskriftarnemendur: 10.500 kr -
Langar þig að ná meiri árangri? Við bjóðum upp á semi-einkatíma fyrir tvo nemendur í flex, pole, lyru og silki! Frábært fyrir æfingarfélaga sem vilja ná meiri árangri. Verð er 9000 kr. per nemenda. Sendu okkur línu á erial@erial.is fyrir nánari upplýsingar. Segðu okkur hvað þú hefur í huga og við finnum fyrir þig þjálfara sem getur hjálpað þér að ná þínum markmiðum! -
Árskort: kr. 206.000 10x tíma add-on klippikort fyrir flex og conditioning að andvirði 23.400kr fylgir með! Aðgangur að frjálsum tímum fylgir með! Þetta kort hentar vel þeim sem vilja æfa af fullum krafti og fá námskeiðin á hagstæðasta verðinu Kortið gildir í 12 mánuði samfleytt og er hægt að velja um æfingar 2x eða 3x í viku Láttu okkur vita í athugasemd hvorn valmöguleikan þú vilt velja. -
ÁSKRIFT
1x í viku / 5x á mánuði - 12.900 kr á mánuði 2x í viku / 9x á mánuði - 19.800 kr á mánuði 3x í viku / 14x á mánuði - 29.900 kr á mánuði Ótakmarkaðir tímar - 44.900 kr á mánuði Lyklaaðgangur: Bættu lyklaaðgangi við áskriftina þína fyrir 6.000kr á mánuði. Lágmark 6 mánaða binditími.ATH: Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega til að tryggja að þetta sé rétti kosturinn fyrir þig.
NOTE: Please read the terms and conditions carefully to ensure this is the right option for you.
Lágmarksbinditími er 6 mánuðir. Uppsagnarfrestur eru þrír mánuðir.
Minimum commitment period is 6 months. Cancellation notice period is 3 months.
Áskriftargjöld eru greidd fyrirfram. Nemendur greiða fyrstu greiðslu hér en framtíðargreiðslur koma til greiðslu í heimabanka 1. dag hvers mánaðar fyrir komandi mánuð. Eindagi reikninga verður 5. dag hvers mánaðar. Með því að staðfesta og greiða þessa áskrift samþykkir þú skilmála Eríal Pole sem eru hér að neðan. Vinsamlegast leyfið allt að 12 kl. á virkum dögum eða 24 kl. um helgar fyrir pöntunina þína að vera afgreidd. Þú færð kvittun senda í tölvupósti þegar pöntunin þín hefur verið afgreidd og þá geturðu skráð þig í tíma á heimasíðu okkar eða í gegnum Mindbody appið. Please allow up to 12 hours on weekdays or 24 hours on weekends for your order to be processed. You will receive an email with your receipt as soon as your order is processed then you will be able to sign up for classes on our home page or through the Mindbody app. -
- Fyrir þau sem vilja æfa utan opnunartíma.
- Nemandi þarf að hafa tekið amk 3 námskeið hjá Eríal og starfsfólk metið það svo að nemandi sé hæf/ur til að æfa á eigin vegum.
- Nemandi hittir starfsmann hjá Eríal þar sem farið verður yfir öll öryggisatriði í stúdíóinu. Þú lærir meðal annars að opna og loka stúdíóinu, setja upp aerial áhöld eða setja á spin og static.
- Æfingar í Stúdíóinu eru á eigin ábyrgð og þarf nemandi að skrifa undir skilmála Eríal Pole áður en hann fær aðganginn.
-
Aerial Silks – Byrjendur 4 vikna námskeið, kennt 2x í viku
07. apríl - 30. apríl 2026 Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 18:25 - 19:25
Byrjendanámskeiðið er fyrir nemendur sem hafa einhverja grunnreynslu í silki. Mælt er með að koma á kynningarnámskeið (Intro to Silks) áður en komið er á þetta námskeið. Á þessu námskeiði munum við taka silki trikkin upp á næsta stig. Hér munum við læra erfiðari trikk og æfa okkur í að gera samsetningar af trikkum! Við munum skoða mismunandi gerðir af hreyfingum og auka líkamsmeðvitundina í silkinu. Til þess að fara í Aerial silks - Byrjendur er mælt með að hafa lokið að minnsta kosti einu Intro námskeiði og/eða að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til ræða það við sinn þjálfara.- Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Mælum með Flex Liðleikaþjálfun og Conditioning fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða special klippikort til að mæta í þessa tíma
- Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.