-
Intro to Lyra - Byrjendanámskeið
Biðlisti
Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið með því að setja það í körfu og ganga frá pöntuninni. Ath engin greiðsla á sér stað. Við höfum samband um leið og við opnum fyrir skráningu!
Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma! Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við nokkrum conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Ert þú að fara að gæsa/ steggja í haust? Hóptímar í Eríal Pole eru frábær skemmtun! Við tökum vel á móti gæsahópum, steggjahópum, vinahópum og vinnuhópum! Allir tímarnir eru ætlaðir fyrir byrjendur og geta því allir verið með! Við höfum margra ára reynslu á því að taka hópa svo við lofum ykkur góðri skemmtun, sjóðheitum myndum og fullt af hlátri! Pole hópskemmtun tilvalið fyrir Gæsa og Steggja hópa. Lærðu fyrstu stöðurnar og snúningana í súludansi! Tíminn er skemmtileg blanda af Pole Fitness og Pole Dance, þar sem þið munið læra sjóðheit danspor og flotta snúninga í kringum súluna! Svo bjóðum við gæsinni/steggnum að vera með smá sýningu fyrir hópinn sem er skemmtilegt að taka upp (jafnvel sýna í brúðkaupinu!). Svo í lok tímans eru teknar hópmyndir sem er alltaf mjög vinsælt! Silki hópskemmtun tilvalið fyrir Gæsa og Steggja hópa. Lærðu fyrstu skrefin og pósurnar í silkinu! Tilvalið fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt! Í silkinu munum við gera læra að klifra upp silkið og gera fallegar og seiðandi pósur í loftinu og jafnframt fara á hvolf! Svo bjóðum við gæsinni/steggnum að vera með smá sýningu fyrir hópinn sem er skemmtilegt að taka upp (jafnvel sýna í brúðkaupinu!). Í lok tímans eru teknar hópmyndir sem er alltaf mjög vinsælt! Sendu okkur fyrirspurn núna á erial@erial.is eða hafðu samband með því að setja í körfuna og fylla út upplýsingarnar (ath engin greiðsla á sér stað). Við svörum þér við fyrsta tækifæri og hlökkum mjög til að heyra í þér! Verið velkomin í nýja stúdíóið okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Rvk! -
Intro to Aerial Silks - Byrjendanámskeið
Biðlisti
Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið með því að setja það í körfu og ganga frá pöntuninni. Ath engin greiðsla á sér stað. Við höfum samband um leið og við opnum fyrir skráningu!
Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunn í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í þessu námskeiði því við byggjum það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við nokkrum conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Aerial Silks – Byrjendur 4 vikna námskeið, kennt 2x í viku
14. apríl - 07. maí 2026 Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 18:25 - 19:25
Byrjendanámskeiðið er fyrir nemendur sem hafa einhverja grunnreynslu í silki. Mælt er með að koma á kynningarnámskeið (Intro to Silks) áður en komið er á þetta námskeið. Á þessu námskeiði munum við taka silki trikkin upp á næsta stig. Hér munum við læra erfiðari trikk og æfa okkur í að gera samsetningar af trikkum! Við munum skoða mismunandi gerðir af hreyfingum og auka líkamsmeðvitundina í silkinu. Til þess að fara í Aerial silks - Byrjendur er mælt með að hafa lokið að minnsta kosti einu Intro námskeiði og/eða að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til ræða það við sinn þjálfara.- Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Mælum með Flex Liðleikaþjálfun og Conditioning fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða special klippikort til að mæta í þessa tíma
- Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Pole Dance 101 - Námskeið fyrir byrjendur 5 vikna námskeið, kennt 1x í viku
22. apríl - 20. maí 2026 : miðvikudagur kl. 19:40
Í Pole Dance 101 ráða háir hælar, bodywaves og hársveiflur ríkjum og kenndar eru dansrútínur og kynþokkafullt flæði á súlunni og gólfinu. Á þessu námskeiði lærir þú súludans og floorwork alveg frá grunni og þarf enga reynslu til að vera með! Ávinningur þess að stunda pole dance er meira sjálfstraust, sterkari líkami og meiri liðleiki! Komdu og lærðu fyrsta snúninginn þinn hjá okkur! Við mælum klárlega með þessum tímum fyrir alla sem elska að dansa! Skráðu þig í dag til að tryggja þér pláss á námskeiðinu! -
- Fyrir þau sem vilja æfa utan opnunartíma.
- Nemandi þarf að hafa tekið amk 3 námskeið hjá Eríal og starfsfólk metið það svo að nemandi sé hæf/ur til að æfa á eigin vegum.
- Nemandi hittir starfsmann hjá Eríal þar sem farið verður yfir öll öryggisatriði í stúdíóinu. Þú lærir meðal annars að opna og loka stúdíóinu, setja upp aerial áhöld eða setja á spin og static.
- Æfingar í Stúdíóinu eru á eigin ábyrgð og þarf nemandi að skrifa undir skilmála Eríal Pole áður en hann fær aðganginn.
-
ÁSKRIFT
Vinsamlegast hafið samband við okkur á erial@erial.is til að fá frekari upplýsingar eða til að kaupa þennan valkost. Please contact us at erial@erial.is for more information or to purchase this option. 1x í viku / 5x á mánuði - 13.900 kr á mánuði 2x í viku / 9x á mánuði - 20.800 kr á mánuði 3x í viku / 14x á mánuði - 31.900 kr á mánuði Ótakmarkaðir tímar - 48.900 kr á mánuði Lyklaaðgangur: Bættu lyklaaðgangi við áskriftina þína fyrir 6.000kr á mánuði. Lágmark 6 mánaða binditími.ATH: Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega til að tryggja að þetta sé rétti kosturinn fyrir þig. Við bjóðum líka upp á mánaðarkort sem er án skuldbindinga.
NOTE: Please read the terms and conditions carefully to ensure this is the right option for you. We also offer a monthly pass which is commitment free.
Lágmarksbinditími er 6 mánuðir. Beiðnir um uppsögn sem berast eftir 15. hvers mánaðar verða gjaldfærðar fyrir næsta mánuð.
Minimum commitment period is 6 months. Cancellation requests received past the 15th of the month will be billed for the next month.
Áskriftargjöld eru greidd fyrirfram. Nemendur greiða fyrstu greiðslu hér en framtíðargreiðslur koma til greiðslu í heimabanka 1. dag hvers mánaðar fyrir komandi mánuð. Eindagi reikninga verður 5. dag hvers mánaðar. Með því að staðfesta og greiða þessa áskrift samþykkir þú skilmála Eríal Pole sem eru hér að neðan. -
Árskort: kr. 206.000 10x tíma add-on klippikort fyrir flex og conditioning að andvirði 23.400kr fylgir með! Aðgangur að frjálsum tímum fylgir með! Þetta kort hentar vel þeim sem vilja æfa af fullum krafti og fá námskeiðin á hagstæðasta verðinu Kortið gildir í 12 mánuði samfleytt og er hægt að velja um æfingar 2x eða 3x í viku Láttu okkur vita í athugasemd hvorn valmöguleikan þú vilt velja. -
Langar þig að ná meiri árangri? Við bjóðum upp á semi-einkatíma fyrir tvo nemendur í flex, pole, lyru og silki! Frábært fyrir æfingarfélaga sem vilja ná meiri árangri. Verð er 9000 kr. per nemenda. Sendu okkur línu á erial@erial.is fyrir nánari upplýsingar. Segðu okkur hvað þú hefur í huga og við finnum fyrir þig þjálfara sem getur hjálpað þér að ná þínum markmiðum! -
Langar þig að ná meiri árangri? Við bjóðum upp á einkatíma í flex, pole, lyru/aerial hoop og silki! Sendu okkur línu á erial@erial.is fyrir nánari upplýsingar. Segðu okkur hvað þú hefur í huga og við finnum fyrir þig þjálfara sem getur hjálpað þér að ná þínum markmiðum! Verð: 12.500 kr Verð fyrir áskriftarnemendur: 10.500 kr