- 
	  Intro to Pole - Byrjendanámskeið 4 vikna byrjendanámskeið, kennt 1x í viku Plus: 4x conditioning or flex classes to use during the course!18. nóvember - 09. desember : þriðudögum kl. 19:40Byrjendatímar í súlufimi sem henta öllum - óháð formi og getu! Það þarf ekki að hafa sérstakan grunn, styrk eða liðleika til að koma á þetta námskeið. Innifalið í verði námskeiðsins eru fjögur miðar fyrir flex- og conditioning tíma til að hjálpa þér að byggja upp styrk og liðleika til að hefja súlaferðalagið þitt af krafti! Við höfum nokkrar lotur af báðum í vikunni sem þú getur fundið á stundatöflunni á heimasíðu okkar og skráð þig á tíma sem hentar þér. Þessi miðar gilda allar fjórar vikurnar sem námskeiðið stendur yfir.Hér lærir þú að hreyfa þig í kringum súluna alveg frá grunni og ekki gert ráð fyrir að þú hafir neinn bakgrunn í íþróttum eða dansi. Þessi tími hentar fyrir alla!- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við auka conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
 
- 
	  Intro to Aerial Silks - Byrjendanámskeið 3 vikna námskeið, kennt 2x í viku4. - 20. nóvember | þriðjudagar og fimmtudagar kl. 18:25 - 19:25Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunn í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í þessu námskeiði því við byggjum það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við nokkrum conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
 
- 
	    6 vikna námskeið, kennt 1x í viku(English below) Aerial hammock er listræn íþrótt þar sem æfingar, teygjur og stöður eru gerðar í silki hengirúmi. Þjálfarar námskeiðsins eru Persephone og Lilja en þær munu leggja áherslu á samsetningar og að flæða á milli trikka svo þú munt læra eina litla flæðandi rútínu í hverjum tíma. Þessi tími er fullkominn fyrir nemendur í súlufimi/súludansi, lyru eða silki sem vilja prófa eitthvað nýtt! Við mælum með að mæta á allt námskeiðið, en það er líka hægt að nota áskrift, mánaðarkort eða klippikort til að skrá sig í staka tíma. Forkröfur: engin fyrri reynsla af aerial hammock nauðsynleg, en helst einhver reynsla af loftfimleikum, hvort sem það er af súlu, lyru, silki o.s.frv. Það er ekki ströng krafa að geta farið á hvolf en mælt er með því til þess að geta fulla þátt.19. október - 23. nóvember 2025 Sunnudagar kl. 15:00 - 16:00- Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Mælum með Flex Liðleikaþjálfun og Conditioning fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikorteða special klippikort til að mæta í þessa tíma
- Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
 
- 
	  ÓTÍMABUNDIN ÁSKRIFT1x í viku / 5x á mánuði - 12.900 kr á mánuði 2x í viku / 9x á mánuði - 19.800 kr á mánuði 3x í viku / 14x á mánuði - 29.900 kr á mánuði Ótakmarkaðir tímar - 39.900 kr á mánuði Lyklaaðgangur: Bættu lyklaaðgangi við áskriftina þína fyrir 6.000kr á mánuði. Lágmark 6 mánaða binditími.ATH: Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega til að tryggja að þetta sé rétti kosturinn fyrir þig.NOTE: Please read the terms and conditions carefully to ensure this is the right option for you.Lágmarksbinditími er 6 mánuðir. Uppsagnarfrestur eru þrír mánuðir.Minimum commitment period is 6 months. Cancellation notice period is 3 months.Áskriftargjöld eru greidd fyrirfram. Nemendur greiða fyrstu greiðslu hér en framtíðargreiðslur koma til greiðslu í heimabanka 1. dag hvers mánaðar fyrir komandi mánuð. Eindagi reikninga verður 5. dag hvers mánaðar. Með því að staðfesta og greiða þessa áskrift samþykkir þú skilmála Eríal Pole sem eru hér að neðan.Við viljum biðja nemendur um að skrifa í athugasemd kennitölu og aðrar hagnýtar upplýsingar. Please write your kennitala and anything else we should know in the comments.
 
			
					