Flex – liðleiki og styrkur
6 vikna námskeið
16. mars – 29. apríl 2021
Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17:15-18:15 (hægt að velja annan eða báða dagana)
Flex liðleikaþjálfun er hin fullkomna viðbót til að æfa samhliða öðrum íþróttum og sérstaklega í súlu og loftfimleikum. Aukin hreyfigeta gerir allt svo mikið auðveldara!
Flex er ekki bara fyrir þau sem eru þegar liðug því það geta allir bætt liðleikann sinn. Lögð er áhersla á aktívar styrktar og liðleikaæfingar.
Þjálfari: Anna Lóa
ATH. Passaðu vel að réttur hópur sé valinn áður en greitt er.