-
Aerial Silks – Byrjendur 4 vikna námskeið, kennt 2x í viku
07. apríl - 30. apríl 2026 Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 18:25 - 19:25
Byrjendanámskeiðið er fyrir nemendur sem hafa einhverja grunnreynslu í silki. Mælt er með að koma á kynningarnámskeið (Intro to Silks) áður en komið er á þetta námskeið. Á þessu námskeiði munum við taka silki trikkin upp á næsta stig. Hér munum við læra erfiðari trikk og æfa okkur í að gera samsetningar af trikkum! Við munum skoða mismunandi gerðir af hreyfingum og auka líkamsmeðvitundina í silkinu. Til þess að fara í Aerial silks - Byrjendur er mælt með að hafa lokið að minnsta kosti einu Intro námskeiði og/eða að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til ræða það við sinn þjálfara.- Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Mælum með Flex Liðleikaþjálfun og Conditioning fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða special klippikort til að mæta í þessa tíma
- Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Pole Dance 101 - Námskeið fyrir byrjendur 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku
01. apríl - 06. maí 2026 : miðvikudagur kl. 19:40
Í Pole Dance 101 ráða háir hælar, bodywaves og hársveiflur ríkjum og kenndar eru dansrútínur og kynþokkafullt flæði á súlunni og gólfinu. Á þessu námskeiði lærir þú súludans og floorwork alveg frá grunni og þarf enga reynslu til að vera með! Ávinningur þess að stunda pole dance er meira sjálfstraust, sterkari líkami og meiri liðleiki! Komdu og lærðu fyrsta snúninginn þinn hjá okkur! Við mælum klárlega með þessum tímum fyrir alla sem elska að dansa! Skráðu þig í dag til að tryggja þér pláss á námskeiðinu! -
Intro to Aerial Silks - Byrjendanámskeið 3 vikna námskeið, kennt 2x í viku
17. mars - 02. apríl | þriðjudagar og fimmtudagar kl. 19:30 - 20:30
Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunn í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í þessu námskeiði því við byggjum það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi!- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við nokkrum conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Intro to Lyra - Byrjendanámskeið
Biðlisti
Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið með því að setja það í körfu og ganga frá pöntuninni. Ath engin greiðsla á sér stað. Við höfum samband um leið og við opnum fyrir skráningu!
Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í þessum tímum munt þú læra þínar fyrstu stöður og snúninga. Lyrurnar er hægt að hækka og lækka eftir þörfum svo hver sem er getur gert fallegar samsetningar strax í fyrsta tíma! Þessi námskeið er fyrir alla sem hafa verið lítið eða ekkert í loftfimleikum áður. Láttu vaða og þú munt svífa um loftið í lyru loftfimleikahring áður en þú veist af!- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við nokkrum conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
-
Intro to Pole - Byrjendanámskeið 6 vikna byrjendanámskeið, kennt 1x í viku
31. mars - 05. apríl : þriðudögum kl. 19:40Byrjendatímar í súlufimi sem henta öllum - óháð formi og getu! Það þarf ekki að hafa sérstakan grunn, styrk eða liðleika til að koma á þetta námskeið. Hér lærir þú að hreyfa þig í kringum súluna alveg frá grunni og ekki gert ráð fyrir að þú hafir neinn bakgrunn í íþróttum eða dansi. Þessi tími hentar fyrir alla!Innifalið í verði námskeiðsins eru fjögur miðar fyrir flex- og conditioning tíma til að hjálpa þér að byggja upp styrk og liðleika til að hefja súlaferðalagið þitt af krafti! Við höfum nokkrar lotur af báðum í vikunni sem þú getur fundið á stundatöflunni á heimasíðu okkar og skráð þig á tíma sem hentar þér. Þessi miðar gilda allar sex vikurnar sem námskeiðið stendur yfir.PS: All of our instructors speak English and all classes are taught in English unless everyone in the class speaks or is working on Icelandic ;-)- Viltu styrkjast hraðar? Bættu við auka conditioning og flex tímum.
- Kauptu klippikort, áskrift, eða mánaðarkort til að halda áfram eftir námskeiðið
- Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.