• Aerial Hoop – open classes and key access

    Í sumar verður tímabundið hlé á Aerial Hoop / Lyru námskeiðum hjá Eríal. Þangað til við flytjum í nýtt húsnæði bjóðum við öllum núverandi lyru nemendum að fá lyklaaðgang á afsláttarverðinu 6.900 kr og innifalið í því er líka aðgangur að öllum opnum tímum. Til þess að fá aðganginn þarf að koma á stuttan fund í stúdíóinu þar sem farið er yfir öryggismál og reglur. Endilega vertu í bandi ef þú ert með einhverjar spurningar!  
  • Tilboð!
    Aerial Hoop er loftfimleikahringur, sem nefnist einnig Lyra, og er algengt áhald í sirkúsum og öðrum sviðslistum. Í hringnum er hægt að gera alls konar fallega snúninga, stöður og samsetningar. Við erum bara með einn hóp í Aerial Hoop eins og er. Sá hópur með blönduðu getustigi, en flestir í hópnum eru á mið/framhaldsstigi. Til þess að komast í hópinn er mikilvægt að hafa náð tökum á grunninum í aerial hoop og hafa góðan styrk. Við viljum því bjóða þeim sem hafa fyrri reynslu af aerial hoop, eða hafa styrk og góðan grunn úr fimleikum eða öðrum íþróttum, að skrá sig á biðlista fyrir örnámskeiðið "Aerial Hoop grunnur (hraðferð)". Í þessum tímum verður farið hratt yfir grunn atriði og þjálfari metur hvort nemendur séu tilbúnir að færa sig upp í Aerial Hoop hópinn. Við höfum samband þegar lágmarksskráningu hefur verið náð og reynum þá að finna dagsetningar sem henta sem flestum. Skráðu þig á listann með því að setja í körfu og ganga frá pöntun (engin greiðsla á sér stað). Ef þú vilt ekki bíða eftir að lágmarksskráning náist, er líka möguleiki að koma í einkatíma í aerial hoop. Endilega hafðu samband við erial@erial.is ef þú ert með einhverjar spurningar!  
  • Tilboð!

    Skráðu þig á biðlista fyrir næsta námskeið með því að setja það í körfu og ganga frá pöntuninni. Ath engin greiðsla á sér stað.

    Við höfum samband um leið og við opnum fyrir skráningu!

    Aerial Silks - Byrjendanámskeið 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku.

    Þetta er námskeið fyrir byrjendur í Aerial Silks. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunnæfingar í silki, trikk og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í level 1 því við vinnum að því að byggja það upp í tímunum. Ávinningar þess að stunda Aerial Silks eru sterkari vöðvar, meiri liðleiki og góður félagsskapur! Lofum góðri skemmtun og hvetjandi umhverfi! Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
  • eríal silki

    Aerial Silks – Mixed level (intermediate -advanced) 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    29. júní - 8. ágúst 2023 Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 17:10-18:10

    Í sumar bjóðum við upp á námskeið með blönduðu getustigi (miðstig-framhald). Í tímunum tökum við silki trikkin upp á næsta stig, gerum samsetningar af trikkum og bætum við fullt af nýju og skemmtilegu efni!
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikorteða skráðu þig á allt námskeiðið.
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
    *Þetta námskeið mun fara fram í nýja stúdíóinu okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Reykjavík

  • Árskort

    206.000 kr.
    Árskort: kr.  206.000 5x tíma klippikort að andvirði 15.900 fylgir með! Aðgangur að frjálsum tímum fylgir með! Fáðu afslátt af heilu ári af námskeiðum! Þetta kort hentar vel þeim sem vilja æfa af fullum krafti og fá námskeiðin á lægra verði! Árskortið gildir í 12 mánuði og nær yfir 8 námskeiðatímabil. Hvert námskeið stendur yfir í 6 vikur og hægt er að velja um að skrá sig á eitt námskeið sem er 2x í viku eða tvö námskeið sem eru 1x í viku. Það eru 2 valmöguleikar fyrir árskorthafa
    1. Korthafi fær fast pláss á námskeiði. Frábært fyrir þau sem vita að þau vilja bara vera skráð á sama námskeiðið og mögulega færa sig upp um námskeið þegar að því kemur.
    2. Korthafi fær inneign sem korthafi getur ráðstafað að vild til að skrá sig sjálf/ur á þau námskeið sem þau vilja vera skráð á hverju sinni. Hér er meira frelsi til að skipta um námskeið, taka 2 námskeið í einu eða taka sér pásur.
    Láttu okkur vita í athugasemd hvorn valmöguleikan þú vilt velja.
  • Áskrift hjá Eríal Pole

    5.000 kr.34.400 kr.

    ÓTÍMABUNDIN ÁSKRIFT

    Námskeið 1x í viku - kr. 10.600 á mánuði Verð per námskeið 16.900. Gildir fyrir námskeið sem er 1x í viku. Athugið að ekki er hægt að nýta áskrift sem er einu sinni í viku fyrir námskeið sem er 2x í viku. Námskeið 2x í viku - kr. 17.200 á mánuði Verð per námskeið 27.900. Gildir fyrir námskeið sem er 2x í viku eða fyrir tveimur 1x námskeiðum í viku.  Námskeið 3x í viku - kr. 27.800 á mánuði (kaupauki: 5 tíma klippikort fylgir fyrstu kaupum!) Verð per námskeið 27.900+16900.   Gildir fyrir námskeið sem er 2x í viku og 1x í viku, eða þrisvar 1x í viku. Námskeið 4x í viku - kr. 34.400 á mánuði (kaupauki: 10 tíma klippikort fylgir fyrstu kaupum!) Verð per námskeið er 27900*2. Gildir fyrir tvö námskeið sem eru 2x í viku, eða eitt námskeið 2x í viku og tvö 1x í viku námskeið. Lyklaaðgangur: Bættu lyklaaðgangi við áskriftina þína fyrir 5000kr á mánuði. Lágmark 6 mánaða binditími.

    Lágmarksbinditími er 6 mánuðir (4 námskeið).

    Áskriftargjöld eru greidd fyrirfram. Nemendur greiða fyrstu greiðslu hér en framtíðargreiðslur koma til greiðslu í heimabanka 15.dag hvers mánaðar fyrir komandi mánuð. Eindagi reikninga verður 2.dag hvers mánaðar. Með því að staðfesta og greiða þessa áskrift samþykkir þú skilmála Eríal Pole sem eru hér að neðan.

    Við viljum biðja nemendur um að skrifa í athugasemd kennitölu og námskeið sem þau vilja vera skráð á.

      Eftir þetta námskeiðstímabil munum við flytja í nýtt húsnæði. Námskeið sem hefjast 28. júní og síðar verða haldin í nýja stúdíóinu okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar verða sendar á alla nemendur.
  • flex

    Flex - liðleiki og styrkur 6 vikna námskeið, kennt 1x í viku

    3. júlí - 9. ágúst 2023 *Mánudagar kl 20:35- 21:35

    *Síðasti tíminn verður haldinn 9. ágúst þar sem 7. ágúst er frídagur Flex liðleikaþjálfun er hin fullkomna viðbót til að æfa samhliða öðrum íþróttum og sérstaklega í súlu og loftfimleikum. Aukin hreyfigeta gerir allt svo mikið auðveldara! Flex er ekki bara fyrir þau sem eru þegar liðug því það geta allir bætt liðleikann sinn. Lögð er áhersla á aktívar styrktar og liðleikaæfingar. Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu! *Þetta námskeið mun fara fram í nýja stúdíóinu okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Reykjavík  
  • Ert þú að fara að gæsa/ steggja í sumar? Hóptímar í Eríal Pole eru frábær skemmtun! Við tökum vel á móti gæsahópum, steggjahópum, vinahópum og vinnuhópum! Allir tímarnir eru ætlaðir fyrir byrjendur og geta því allir verið með! Við höfum margra ára reynslu á því að taka hópa svo við lofum ykkur góðri skemmtun, sjóðheitum myndum og fullt af hlátri! Pole hópskemmtun tilvalið fyrir Gæsa og Steggja hópa. Lærðu fyrstu stöðurnar og snúningana í súludansi! Tíminn er skemmtileg blanda af Pole Fitness og Pole Dance, þar sem þið munið læra sjóðheit danspor og flotta snúninga í kringum súluna! Svo bjóðum við gæsinni/steggnum að vera með smá sýningu fyrir hópinn sem er skemmtilegt að taka upp (jafnvel sýna í brúðkaupinu!). Svo í lok tímans eru teknar hópmyndir sem er alltaf mjög vinsælt! Sendu okkur fyrirspurn núna á erial@erial.is eða hafðu samband með því að setja í körfuna og fylla út upplýsingarnar (ath engin greiðsla á sér stað). Við svörum þér við fyrsta tækifæri og hlökkum mjög til að heyra í þér!
  • Pole Fitness – Level 1 6 vikna byrjendanámskeið, kennt 1x í viku

    • 29. júní - 3. ágúst 2023 Fimmtudagar kl. 19:25 - 20:25

    • 4. júlí - 8. ágúst 2023 Þriðjudagar kl. 19:25 - 20:25

      Þetta er námskeið fyrir byrjendur í pole fitness. Hér er farið í undirstöðuatriði og grunnæfingar í polefitness, snúninga og klifur! Ekki þarf að hafa neinn sérstakan grunn, styrk eða liðleika áður en þú byrjar í level 1 því við vinnum að því að byggja það upp í tímunum. Ávinningur þess að stunda pole fitness er meira sjálfstraust, betri heilsa, sterkari líkami, innri vellíðan og aukin félagstengsl! Komdu og lærðu fyrsta snúninginn þinn hjá okkur! *Þetta námskeið mun fara fram í nýja stúdíóinu okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Reykjavík Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu. Veldu tímasetningu hér:
  • Pole Fitness – Level 2 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    29. júní - 8. ágúst 2023 Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 18:20-19:20

    Þetta námskeið er fyrir þau sem eru búin með námskeið í Pole Fitness Level 1. Á þessu námskeiði höldum við áfram að æfa trikk úr level 1, æfum við okkur í að klifra, byggjum upp styrk og prófum að fara á hvolf í fyrsta sinn. Athugið að á þessu námskeiði getur komið til þess að nemendur þurfi að deila súlu með öðrum nemendum. Til þess að fara í level 2 er nauðsynlegt að hafa lokið level 1 og að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til að tala við sinn þjálfara til þess að fá mat. *Þetta námskeið mun fara fram í nýja stúdíóinu okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Reykjavík
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið.
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
     
  • Pole Fitness – Level 3 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    28. júní - 9. ágúst 2023 *Mánudagar og miðvikudagar kl. 17:15-18:15

    *Síðasti tíminn verður haldinn 9. ágúst þar sem 7. ágúst er frídagur Á þessu námskeiði er verið að vinna í skemmtilegum trikkum uppi á súlunni og því mikilvægt að geta klifrað, auk þess sem unnið er í að fara á hvolf! Athugið að á þessu námskeiði getur komið til þess að nemendur þurfi að deila súlu með öðrum nemendum. Til þess að fara í level 3 er nauðsynlegt að hafa lokið level 2 og að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til að tala við sinn þjálfara til þess að fá mat. *Þetta námskeið mun fara fram í nýja stúdíóinu okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Reykjavík
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið.
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.
     
  • Pole Fitness – Level 4 6 vikna námskeið, kennt 2x í viku

    28. júní - 9. ágúst 2023 *Mánudagar og miðvikudagar kl. 19:25 - 20:25

    *Síðasti tíminn verður haldinn 9. ágúst þar sem 7. ágúst er frídagur Athugið að á þessu námskeiði getur komið til þess að nemendur þurfi að deila súlu með öðrum nemendum. Þetta er framhalds námskeið í Pole fitness þar sem unnið er að því að bæta styrk, æfa snúninga og gera skemmtileg trikk á hvolfi. Í level 4 eru m.a kennt jade, alegra og shouldermount. Til þess að fara í level 4 er nauðsynlegt að hafa lokið level 3 og að þjálfari hafi metið svo að nemandi sé tilbúinn að færa sig upp. Það er ótrúlega persónubundið hversu lengi eða fljótt fólk fer upp um erfiðleikastig og við hvetjum nemendur til að tala við sinn þjálfara til þess að fá mat. *Þetta námskeið mun fara fram í nýja stúdíóinu okkar að Hallgerðargötu 23, 105 Reykjavík
    • Kaupauki: Frjálsir föstudagstímar fylgja öllum námskeiðum. Æfðu oftar í viku fyrir sama pening!
    • Mættu á æfingar utan opnunartíma! Kauptu lyklaaðgang að stúdíóinu hér.
    • Mælum með Flex Liðleikaþjálfun fyrir nemendur á þessu námskeiði. Kauptu klippikort eða skráðu þig á allt námskeiðið.
    • Vilt þú æfa á betra verði? Skráðu þig í áskrift hér.
    • Flest stéttarfélög endurgreiða námskeið að hluta eða að fullu.

Go to Top